Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1946, Side 29

Skinfaxi - 01.04.1946, Side 29
SIvINFAXI 29 Þó a'ð Verkalýðsflokkurinn hafi miklu viðtækari bjóðnýtingaráform á stefnuskrá sinni, og þótt hann Jiafi mikinn meirihluta að baki, er vald hans til laga- setninga skert með stjórnarskrá þeirri, sem sett var, er einstöku fylki gengu til samkomulags um mið- stjórn. í stjórnarskránni er skýrt ákveðið, hvaða lög þingið getur sett, og hvaða vald er heima fyrir hjá fylkj- unum. Stjórnarskránni verður því aðeins breytt, að meiri 'duti allra kjósenda fáist með breytingarfrumvarpinu,og auk þcss verður meiri hluti fylkjanna að samþykkja það. Árið 1944 ákvað stjórnin að láta fara fram at- kvæðagreiðslu um fjórtán viðbótaratriði, sem ykju vald landsstjórnarinnar (miðstjórn fylkjanna). Öll þessi atriði skyldu miða að skipulagningu viðreisnar- innar eftir stríðið, eftirliti með vinnumarkaðinum og sölu ýmissa vörutegunda. Þetta var fellt af fjórum fylkj urn af sex og litlum meirihluta atkvæða. Vegna ákvörðunar hæstaréttarins i máli flugvélafélaganna gegn ríkisstjórninni, út af þjóðnýtingu flugsamgangn- anna, má gera ráð fyrir nýrri þjóðaratlcvæðagreiðslu nni aukin réttindi stjórnarinnar innan skamms. Engu verður spáð um úrslit atkvæðagreiðslunnar, en ef atrið- inu um ihlutun um vinnuafl verður kippt burtu, er líklegt, að stjórnin fái meira fylgi en við fyrri atkvæða- greiðslu. Ástralía getur horft fram á alveg einstaklega góða fjárhagslega afkomu næstu tíu árin, að dómi banka- stjóra Landbúnaðarbankans í Nýja Suður-Wales. Er þetta að þakka sterkri og affarasælli fjármálastjórn á striðsárunum. Dýrtíðinni var haldið nokkurn veginn í skefjum, vöruverðið hækkaði aðeins um 22.9 af hundr- aði. Ástralía hefur nú orðið tveim ldutverkum að gegna i iðnaðinum, að framleiða fyrir landið sjálft og einnig til útflutnings. Þessi gífurlega breyting lilýtur að hafa

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.