Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.04.1946, Qupperneq 31

Skinfaxi - 01.04.1946, Qupperneq 31
SKINFAXI 31 lui®a myndaval sitt við menningarhæfi og siðleg áhrii'. ^ erulegur liluti þeirra kvikmynda, sem sýndar eru J,’®r á landi, eru allt annað en uppbyggilegar. Fjöldi þeirra eru meðlialdsmyndir úr lífi eyðslustétta. Þar er varpað Ijórna meðlialds og aðdáunar yfir ýmis- Jegan hégóma og fánýti, sem ekki þarf að eiga neitt skylt við menningarlíf eða raunveruleg lífsþægindi. Slíkar myndir stuðla að því, að áhorfendunum finn- íst hégóminn æskilegur og eftirsóknarverður, að ekki Se meira sagt. Eins er það áreiðanlegt, að margar ^yndirnar eru útbreiðslutæki tóbaksnautnar og á- fengis. Þær sýna nautn þessara eiturlvfja eins og sjálfsagðan hlut og fastan lið í lífi fínna manna. Þegar þess er gætt, að fína fólkið í kvikmyndunum fyllir huga íslenzkra unglinga þúsundum saman og vekur þar löngum þrár fyrir því lífi, sem það lifir, þá er það auðskilið, að kvikmyndahúsin reka álirifa- Jiiikla auglýsingastarfsemi fyrir tóbaksverzlanir og afengissölu. Þar með er það vitanlegt, að kvikmynd- lraar verka stundum niðurbrjótandi á siðgæði áhorf- endanna. Hvað sem hæft kann að vera i því, að þær hafi beinlínis. þau áhrif, að svifta fólkið virðingu fyrir mörgu þvi, sem ber uppi siðað mannfélag og auka þannig afbrot og glæpi, er niðurstaðan nógu leiðinleg. Við getum látið þær fullyrðingar liggja milli hluta, Kvikmyndirnar eru samt að móta afbrotamenn og grafa sundur grunn mannfélagsins, því að það er staðreynd, að nálega hver einasti einn þeirra óláns- manna, sem hér á landli villist inn í myrkvastofu afbrota og glæpa, koma þar gegnurn forsal áfengis og tóbaksnautnar. Vitnisburðir fangavarðar, lögreglu- stjóra og ýmissa velmetinna lögregluþjóna liggja fyr- ir þessu til sönnunar, vandlega rökstuddir. Verða þeir ekki frekar raktir Iiér, en aðeins á þetta minnzt til sönnunar þeirrar miklu siðferðilegu hættu, sem skemmtanalifið býr vfir og m. a. i kvikmyndahúsun-

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.