Skinfaxi - 01.04.1946, Blaðsíða 38
38
SKINFAXI
II.
íslenzk Umf. munu fjölmenna að Laugum í Reykja-
dal um fyrstu helgi j júlí. Þar stendur sá héraðsskóli, er
fyrstur var reistur á heitum stað, m. a. fyrir forgöngu
ungmennafélaga í S.-Þingeyjarsýslu. Skammt þaðan
var fyrstá Umf. stofnað 14. janúar 1906.
Héraðssamhöndin munu flest senda keppendur á
Laugamólið og Umf. víðsvegar um landið munu nú þeg-
ar undirbúa hópferðir að Laugum, til þess að taka
virkan þált í afmælisfagnaðinum. Undirbúningur er
bafinn fyrir nokkru á Laugum og hcfir þar meðal ann-
ars verið gerður iþróttavöllur. Héraðssamband S.-
Þing. befir alla forgöngu um undirbúning, og fer hann
myndarlega af stað. Stjórn þess skal tilkynnt um þátt-
töku í íþróttunum með viku fyrirvara. Hópferðir verða
að sjálfsögðu með tjöld og annan nauðsynlegan viðlegu-
útbúnað. Þarna hittast æskumenn og meyjar úr öllum
landsfjórðungum. Dvelja við iþróttir, ræður, söng,
kvikmyndir og aðrar skemmtanir tvo daga í ríki hinnar
„nóttlausu voraldar veraldar“. Treysta bönd kynningar
og ræða sameiginlegt framtíðarstarf, mikilvægt starf
fyrir islcnzka æsku, og minnast jafnframt með þakklæti
æskumannanna fyrir 40 árum, sem gáfu Umf. þann
lífsneista, er varðveizt liefir með þjóðinni þessa áratugi.
Kvikmyndin mun svo geyma þennan merkisviðburð,
svo þeir, er heima dvelja, gcti síðar notið að nokkru
þess er fram fer. U.M.F.Í. á þegar kvikmynd frá Hvann-
eyrarmótinu 1943 og mun hún verða sýnd meðal Umf.
jafnframt þessari.
Ungmcnnafélagar! Fjölmennið á Laugamótið. Und-
irbúið för ykkar vel. Iljálpizt öll að því, að gera þennan
afmælisfagnað glæsilegan og samboðinn islenzkri æsku.
Það verður gagnlegt veganesti að 50 ára áfanganum.
Islandi allt!