Skinfaxi - 01.02.1960, Síða 7
SKINFAXl
UNGMEIMIMAFÉLAG MÝRAHREPPS
/
ara
1909 — 2E3. N□ V.
1959
Dýrafjörður. Eftir málverki
Björns Guðmundssonar.
Höíundur þessarar greinar, Björn Guðmunds-
son frá Næfranesi i Dýrafirði, var áttræður 26.
júní s.l. Hann er einn af merkustu starfs. og
áhugamönnum ungmennafélagshreyfingarinnar
á Islandi. Hann var í aldarfjórðung afbrigðra
virkur formaður þess félags, sem hann skrifar
um þessa grein, og um fjóra áratugi formaður
Héraðssambands U.M.F. Vestfjarða, driffjöðrin
í starfi þess og sameiningartákn til allra átaka.
Þá var og fyrir hans tilstilli alltaf starfandi
ungmennafélagsdeild í Núpsskóla, en kennari
þess skóla var Björn frá 1908—’28 og skóla-
stjóri 1929—’42 — en síðan enn kennari skólans
á annan áratug. Var hann afbrigða vinsæll
kennari, og bætti það mjög fyrir um starfs-
möguleika ungmennafélaga og ungmennasam-
bands á Vestfjörðum, því að Björn hélt sam-
bandi við fjölda af fyrrverandi nemendum sín-
um og hvatti þá til starfa.
Björn var mjög góður ræðumaður og fyrir-
lesari, og alltaf var hann fús til að leggja á
sig vökur við að semja fyrirlestra og ræður —
og síðan erfið ferðalög um dali og fjallaskörð
að vetrarlagi i misjöfnu veðri og færð. Hann
kvæntist aldrei, og má óhætt fullyrða, að félags-
hugsjónum sínum og nemendum hafi hann
helgað þann tíma, sem flestir helga fjölskyldu-
lífi. Eitt mjög veigamikið nýmæli tók Björn
upp í kennslustarfi sínu og þar sem hann fékk
beitt áhrifum sínum við félagsstörf. Það var
listrænn upplestur íslenzkra bókmennta, þ. e.:
lestur með raddbreytingum eftir efni. Hann
var sjálfur ágætur upplesari, og hann fékk vak-
ið mikinn áhuga fyrir listrænni túlkun skáld-
skapar í upplestri. Minnist ég þess af einlægu
þakklæti, að hann upplauk fyrir mér nýjum
heimi skilnings og listnautnar, þegar ég heyrði
hann fyrst túlka kvæði og sögur, og jók mér
skilning á bókmenntum og allmennu gildi
þeirra, en eins og ég hef bent á hér í Skinfaxa.,
er listræn túlkun skáldrita, kvæða og sagna, af-
bragðs viðfangs. og skemmtiefni handa ung-
mennafélögum.
Björn Guðmundsson gegndi fjölda trúnaðar-
starfa fyrir sveit sína, og á hún honum margt
og mikið upp að unna, en þó að sitthvað annað
en ungmennafélagshreyfingin ætti góðan liðs-
mann, þar sem Björn var, er óhætt að fullyrða,
að vart hafi hann lagt neins staðar aðra eins
eindæma alúð í störf sín og á vettvangi ung-
mennafélaganna og allra þeirra hugsjónamála.
Ritstjóri.