Skinfaxi - 01.07.1969, Blaðsíða 8
Strákar úr UMFK og
KFK voru að keppa í
knattspyrnu á bezta
malarvelli landsins.
í bænum er aðeins einn mjög lítill sal-
ur við barnaskólann, sem notaður er
fyrir frjálsa íþróttastarfsemi frá því
um kl. 6 síðdegis og svo á laugardögum
og sunnudögum. Þetta er auðvitað
hvergi nærri nóg, þar sem þessir tímar
skiptast milli ÍBK og félaganna þriggja
og kemur því lítið í hlut hvers aðila.
Iþróttabandalagið hefur orðið að leigja
tíma uppi á flugvelli fyrir mestarafl. í
knattspyrnu og handknattleik, og í
gamla bragganum (Krossinum) í Ytri-
Njarðvík leigði Ungmennafélagið 20
tíma á viku í vetur. Við verðum því að
æfa í íþróttasölum á þremur stöðum,
þar af tveimur utanbæjar, og kostar
það auðvitað fyrirhöfn og erfiði, en við
vonum að ekki líði á löngu þar til
stórt íþróttahús verður byggt hér í bæn
um.
Þetta er gamla „Úngó“, sem bráðlega verður
að víkja, en UMFK byggir nýtt í staðinn.
S
— En þið hafið góða velli nú orðið?
— Já, hér höfum við sennilega bezta
malarvöllinn á landinu. Malarblandan
í völlinn tókst með þeim ágætum, að
það má næstum nota hann allan ársins
hring, iíka á þeim tíma, sem aðrir mal-
arvellir eru ófærir sökum aurs og eðju.
Grasvöllurinn er mjög góður. Hann var
vígður fyrir tveimur árum og nú er
verið að ljúka við að fullgera hlaupa-
brautina og unnið er að því að auka
við áhorfendastæði.
— Hvað er að segja um félagsstarf-
ið, þegar íþróttunum sleppir?
— Að sjálfsögðu fer mestur okkar
tími og mestir kraftar í íþróttirnar, en
bygging nýja félagsheimilisins er okk-
ar stærsta félagslega átak á næstunni.
Félagið keypti núverandi hús sitt
árið 1936, en það var gamalt verzl-
unarhús. Þetta gamla hús er búið að
gegna stóru hlutverki í félagsmálum
Keflavíkur, og það er allvistlegt að
innan, þótt ytra borðið sé heldur óhrjá-
legt. Nú þarf gamla „Ungó“ að víkja
fyrir nýju skipulagi bæjarins. Við ætl-
um að byggja nýtt félagsheimili og sam
komuhús í staðinn. Við höfum fengið
lóð hérna við Hringbrautina, og ætlun-
in er að byrja í sumar, eins og ég sagði
áðan.
— Hvernig er fjárhagsafkoman?
SKINFAXI
Á