Skinfaxi - 01.07.1969, Síða 11
JÓHANNES SIGMUNDSSON:
Þátttaka félagasamtaka
í landgrœðslu
Erindi flutt á ráðstefnu um gróðureyðingu og land
grœðslu 13. apríl s. I. Nokkuð stytt
Ég mun í þessu spjalli mínu einkum
ræða þátttöku almennings og þá sér-
staklega ungs fólks í gróðurvernd og
landgræðslu.
Ég hygg, að þeir, sem hér eru saman
komnir, séu sammála um nauðsyn þess
að landsmenn allir taki höndum saman
í þessum efnum.
Ef til vill erum við ekki að öllu leyti
sammála um það, hve mikils virði þátt-
taka almennings er, en óumdeilanlega
hlýtur hún að verða málefninu mikils-
verður stuðningur. Ekki hvað sízt þurfa
augu hinna yngri, þeirra sem landið
erfa, að opnast fyrir mikilvægi gróðurs
og varðveizlu hans og aukningu.
Af hálfu hins opinbera hefur á und-
anförnum árum og áratugum verið unn
ið mikið starf á þessum vettvangi, en
nú hin síðustu ár hafa ýmis félagasam-
tök boðið fram krafta sína og hafizt
handa á þessum vettvangi, enda blasa
verkefnin hvarvetna við.
Lionsfélagar og þá einkum félagar í
Lionsklúbbnum Baldri munu vera sá
félagsskapur, er fyrstur leggur fram
SKINFAXI
sameinaða krafta sína á þessum vett-
vangi með skipulögðum landgræðslu-
ferðum og einnig hefur sá félagsskap-
ur hvatt almenning til þátttöku, m. a.
með því að hafa til sölu á benzínsölu-
stöðvum og víðar fötur með áburði og
grasfræi, er ferðamönnum er ætlað að
taka með sér, og hafa þeir þannig að
nokkru aflað fjár til þessarar starfsemi
sinnar.
Þá vil ég víkja að þætti ungmenna-
félaganna í þessum málum.
Ungmennafélagshreyfingin barst til
Islands skömmu eftir aldamótin síð-
ustu og náði skjótt mikilli útbreiðslu.
Hafa ungmennafélögin síðan starfað
hér á landi, einkum í strjálbýlinu, í rúm
60 ár og látið margvísleg málefni til
sín taka. Heildarfélagatala mun nú vera
um 13 þús. „Ræktun lýðs og lands“ eru
einkunnarorð ungmennafélaga og hafa
þau m. a. tekið virkan þátt í skógrækt-
armálum á liðnum áratugum, og eiga
mörg þeirra myndarlegar skógræktar-
stöðvar. Einnig má minna á Þrastar-
skóg, sem er eign UMFÍ.
11