Skinfaxi - 01.02.1970, Side 17
vera að snúa við. Löndin austan garnla
járntjaldsins liafa aukið íþróttakennslu í
skólum sínum undanfarin ár. Sama hafa
Ameríkumenn gert, eftir að her þeirra
kvartaði stórlega yfir hve nýliðar yrðu
með hverju árinu, sem liði, ver hæfir til
herþjónustu. Síðast voru það svo Frakk-
ar, sem í sumar er leið ákváðu að á yfir-
standandi skólaári skyldu allir franskir
skólanemar fá eina stund á dag til
íþróttaiðkana.
Á sama tíma hófu Norðmenn áróður
fyrir æfingum almennings. „TRIM“ kalla
þeir það. Hefur sú hreyfing slegið í gegn
og verið tekin upp í fjölda landa og
stendur til að ÍSÍ hefji áróður fyrir henni
hér á landi, þegar nafn á hana er fundið
og aðstaða sköpuð til að taka á móti og
hjálpa þeim, sem hlýða munu kallinu.
Facit verksmiðjurnar sænsku, sem hafa
útibú víða um heim, hafa mjög ákveðinn
framkvæmdastjóra. Gunnar Erikson heit-
ir hann og er þekktur maður í sínu
heimalandi og víðar.
Fyrir skömmu hélt hann ræðu og lang-
ar mig að endursegja hluta hennar og
koma fyrir sjónir ykkar áliti þessa merka
kaupsýslumanns á „motion“ og áhrifum
þess; ræða þessi var haldin í Rotaryfé-
lagi:
„Fyrir mig, sem framkvæmdastjóra fyr-
irtækis, er framlag okkar til íþrótta fjár-
festing — á sama hátt og fyrirtækið fjár-
festir í framleiðslu, þróun, kynningu og
auglýsingum. Og ég álít það vera jafn
mikilvægt, að hlúa að heilsuþjálfun
starfsfólksins, og-að láta starfsfólkið læra
meira um starf sitt á námskeiðum. Það er
ekkert vafamál, og reyndar hafið vfir all-
Svolitla hugkvæmni þart til aS koma upp
áhrifamiklum æfingatækjum á vinnustöðum.
Prófið þetta á ykkar vinnustað!
an efa, að háðir aðilar fá hærri vexti af
liveri krónu til menntunar starfsfólksins
ef þær eru notaðar til að greiða kostaað
á menntun fólks, sem einnig hefur heim-
sóknir í heilsusali á sinni daglegu braut.
Það er og vitað, að fólk verður ánægð-
ara, ef hægt er að gefa því möguleika til
meiri fjölbreytni og heilbrigðara lífs í
frístundunum — sundhallir, íþróttahallir,
golfbrautir, raflýst skíðaspor, vinnumæl-
ingahjól eru allt mjög þýðingarmikil
atriði í keppninni um vinnuaflið.
SKINFAXI
17