Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1970, Blaðsíða 24

Skinfaxi - 01.02.1970, Blaðsíða 24
fram á árinu 1969, og bar sveit Umf. Skalla- gríms sigur úr býtum. Mikikll áhugi er á starfsíþróttum, og var starfsíþróttamót hald- iS með 21 þátttakanda. UMSB. greiðir kr. 200.000.— til Byggðasafns Borgarfjarðar á árinu 1969. Húsafellsmótið tókst mjög vel á s.l. sumri, og er mikil fjárhagsleg lyfti- stöng sambandinu og öllum aðildarfélögum þess. Fjölþætt íþróttastarfsemi fer fram á vegum UMSB. í flestum greinum íþrótta, og athygli vegur hin mikla þátttaka yngstu æsk- unnar og val verkefna þeim til handa. Ársskýrslu UMSB. lýkur svo með athyglis- verðu yfirliti um starfsemi hinna einstöku aðildarfélaga innan sambandsins. Ymsar stórmerkar samþ. voru gerðar á þessu 48. ársþingi UMSB. í sambandi við íþróttamál, og íþróttamannvirki, varðandi menningarlegt samkomuhald, til stjórnvalda, og þakkir og hvatning til landssambandanna UMFÍ og ÍSÍ. Hinum vinsæla félagsleiðtoga Höskuldi Goða Karlssyni voru sendar kveðj- ur frá þinginu í bundnu máli. Eitt félag gekk í sambandið á þessu þingi, Umf. Egill Skallagrímsson. Stjórn UMSB. var öll endurkosin en hana skipa: Vilhjálmur Einarsson form., Óttar Geirsson gjaldkeri, Sigurður B. Guðbrands- son ritari, og meðstjórnendur: Sigurður R. Guðmundsson og Sveinn Jóhannesson. 48. HÉRAÐSÞING HSK. Héraðssambandið Skarphéðinn hélt 48. ársþing sitt í húsi sambandsins á Selfossi 14. og 15. febrúar 1970. Formaður Skarphéðins, Jóhannes Sigmundsson, setti þingið og flutti skýrslu stjórnarinnar. Skýrslan hafði verið gefin út prentuð með miklum upplýsingum um starf ungmennafélaganna á Suðurlandi, og einnig flytur hún metaskrár HSK í íþrótt- um. Eggert Haukdal, gjaldkeri, skýrði reikn- inga sambandsins. Sýslufélögin í Árnes- og Rangárvallasýslum og 25 hreppsfélög styrktu Skarphéðin með fjárframlögum, alls kr. 165.750.00. Sambandið lagði kr. 352.660.00 til Skarphéðinsheimilisins, auk þess sem tekjuafgangur á rekstrarreikningi hússins er um 270 þús. krónur. Þingið gerði margar ályktanir um dag- skrármál ungmennaíélaganna og baráttumál HSK, svo sem félagsmál, bindindismál, land- græðslumál, spurningakeppni og samkomu- hald í héraðinu, starfsíþróttir, íþróttamál og ýmis önnur menningarmál. Þingið hvatti aðildarfélögin til að fjölga áskriftum að Skinfaxa hvert á sínu félagssvæði. Takmark- ið er, að Skinfaxi komi á hvert heimili ung- mennafélaga á sambandssvæðinu. Hafsteinn Þorvaldsson, formaður UMFÍ og ritari HSK, flutti þinginu kveðjur stjórn- ar UMFÍ. Hann færði héraðssambandinu að gjöf þrjú myndaalbúm með myndum frá starfsemi Skarphéðins á liðnum árum. Her- mann Guðmundsson flutti kveðjur frá fram- kvæmdastjórn ÍSÍ og sagði frá starfi þess. Hafsteinn Þorvaldsson gaf ekki kost á sér til starfa áfram í stjórn sambandsins, en hann var kosinn formaður Ungmennafélags íslands á þingi þess s.l. sumar. Hafsteinn hefur verið ritari Skarphéðins í samfellt 10 ár, og færði þingið honum þakkir fyrir vel unnin störf. Formaður HSK var endurkjörinn Jóhann- es Sigmundsson og sömuleiðis gjaldkerinn Eggert Haukdal. Ritari var kosinn Hjörtur Jóhannsson, Hveragerði. Varastjórn var endurkjörin, en hana skipa: Stefán Jasonar- son, Hermann Sigurjónsson og Björn Sig- urðsson. Jóhannes Sigmundsson, form. HSK. 24 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.