Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1970, Qupperneq 19

Skinfaxi - 01.06.1970, Qupperneq 19
öflunarleiðir hennar brugðust að meira eða minna leyti. Stjórnarmennimir lögðu af mörkum feikna mikla vinnu til að afla fjár til starf- semi deildarinnar, án þess að geta glaðzt yfir því að loknu starfsári að hafa leyst vandamálið að fullu. Við næsta stjómar- kjör gáfu svo 2 af 5 stjórnarmönnum ekki kost á sér til endurkjörs. Þeir voru búnir að fá nóg. Það þyrfti því engan að undra þótt þes'si deild félagsins myndi einn góðan veðurdag vanta fólk til þess að standa í þessu eilífa stappi, aðeins fyrir ánægj- una eina, og þurfa sífellt að vera að sníkja hjá einum en svíkja annan til þess að einhverjir þeim óviðkomandi geti stundað íþróttir sér til heilsubótar og ánægju. Sjálfboðastarf er ágætt og mikið innan íþróttahreyfingarinnar og unnið af mik- illi óeigingirni, enda má með sanni segja, að á því hyggi hreyfingin tilvem sína. En menn þreytast á því að leggja fram tíma sinn og krafta og jafnvel eigið fé í vonlausri baráttu við fjárhagsdrauginn. Þeir skilja þetta bezt, sem staðið hafa í Fjölmörg ný íþrótta- hús hafa veriS reist við skóla landsins á und- anförnum árum. En íþróttaféiögunum er ofviða að greiða þá húsaleigu, sem krafizt er fyrir æfingar á þeim tíma, sem skólamir burfa ekki að nota húsin. vandamáli leyfa mér að birta helztu nið- urstöðutölur rekstrarreiknings deildar eins íþróttafélags, hvers reikningar mér hafa verið sendir. Umrædd deild starfaði allt árið og voru æfinga og kennslustundir á henn- ar vegum um 1500 það árið. í skýrslu stjórnarinnar kom fram, að hún taldi aðsókn á æfingarnar hafa verið mjög góða, og stundum svo mikla að ekki hafi verið hægt að sinna öllum, sem komu og vildu æfa. Kostnaður deildarinnar vegna kennslu og húsnæðis nam um 300 þús. og skipt- ist hann nokkurn veginn að jöfnu. Annar kostnaður varð um 90 þús. en þar í var þó enginn stjórnarkostnaður, engin risna né kostnaður við stjómarfundi, sem þó urðu alls 45 á árinu. Upp í þennan kostn- að hafði deildin um 85 þús. í gjöldum frá meðlimum, 50 þús. frá velunnurum og um 60 þús. kr. styrk frá opinberum aðilum. Stjórn deildarinnar varð því að útvega tæpar 200 þús. á annan hátt til þess að deildin væri rekin hallalaust. Að þessu sinni tókst það ekki, þar sem ýmsar fjár- SKINFAXI 19

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.