Skinfaxi - 01.02.1971, Page 3
Öb'o
Ski
Tímarit Ungmennafélags íslands — LXII. árgangur — 1. hefti — 1971 — Ritstjóri Eysteinn
Þorvaldsson — Út koma 6 hefti á ári hverju, hvert 32 síður.
LANDSMÓTSÁR
Árið 1971, sem nú er gengið í garð, er
landsmótsár, og eins og jafnan endranær fara
þá straumar starfsorku og kapps um ung-
mennafélagshreyfinguna. Dagana 11. og 12. júlí
í sumar verður 14. landsmót UMFÍ haldið á
Sauðárkróki. Ungmennafélagar um allt land
búa sig undir þátttöku í mótinu, ýmist sem
þátttakendur i íþróttakeppni, sýningum, margs
konar dagskráratriðum eða sem almennir þátt-
fakendur i þessari þjóðhátíð æskunnar á ís-
landi. íþróttafólk innan vébanda UMFÍ hefur
hafið markvissar æfingar með þátttöku í lands-
mótinu sem höfuðmarkmið og jafnvel þátttöku
> utanferð íþróttafólks að loknu landsmóti.
Landsmótin hafa með réttu verið kölluð
..fjöregg ungmennafélagshreyfingarinnar", og
það er nú í traustum höndum, þar sem eru
forystumenn Ungmennasambands Skagafjarð-
ar. Á Sauðárkróki verður boðið til glæsilegrar
'þrótta- og æskulýðshátiðar við góðar aðstæð-
ur.
En mörg fleiri stórmál verða á dagskrá ung-
uiennafélaganna á þesu ári. Að þessu sinni
h>un ég aðeins minna á tvö þeirra. Gert verður
stórátak i náttúruvernd og umhverfisfegrun.
Jafnframt því sem öllum fyrri þáttum land-
9raeðslustarfsins verður haldið áfram er nýtt
stak framundan í samvinnu við Vegagerð ríkis-
SKiNFAXI
ins, en það er landgræðsla meðfram þjóðveg-
um landsins, sem nánar verður skýrt frá siðar
i Skinfaxa.
í öðru lagi er brýn nauðsyn á því að ung-
mennafélögin séu vakandi og starfandi í bar-
áttunni gegn skaðnautnum og vinni ötullega
með öllum aðilum, sem berjast gegn innflutn-
ingi og dreifingu eiturlyfja, sem eru alvarleg
ógnun við heilbrigt líf æskunnar í landinu.
H. Þ.
ISLAKDS