Skinfaxi - 01.02.1971, Blaðsíða 8
Héraðssambandið
Skarphéðinn 60 ára
Fyrir nokkru varð Héraðssambandið
Skarphéðinn 60 ára. Hinn 9. október árið
1910 fæddist nafnarfi kappans Skarphéð-
ins, og ekki verður annað sagt en að erf-
inginn beri nafn með sóma á sextugsaf-
mælinu. Sambandið hét raunar Iþrótta-
sambandið Skarphéðinn í fyrstu, en árið
1922 var nafninu breytt. Undanfari stofn-
unarinnar voru óformleg samtök ung-
mennafélaganna á Suðurlandi um að
halda íþróttamót að Þjórsártúni. Var
fyrsta mótið haldið þar sumarið 1910 og
tókst með ágætum. Vorið 1911 var gamli
íþróttavöllurinn í Þjórsártúni byggður, og
var það mikið afrek hjá hinu nýstofnaða
sambandi. Þessi fyrsti íþróttavöllur á
Suðurlandi er enn við lýði í sinni upp-
runalegu mynd, og verður hann vonandi
varðveittur, enda á hann það skilið vegna
sérkenna sinna og sögufrægðar.
Skarphéðinn lét strax til sín taka í
æskulýðs- og menningarmálum Sunn-
lendinga. Undir merki Skarphéðins hafa
sunnlenzkir ungmennafélagar att kappi
innbvrðis og barizt sameinaðir út á við
og unnið marga frækilega sigra. Héraðs-
mótin og héraðsþingin hafa jafnan verið
merkisviðburðir í héraðinu. Skarphéð-
in hefur sameinað kraftana og efnt til
samskipta og keppni, staðið fvrir kennslu
Þessi mynd er tekin á
héraðsþingi HSK 1970,
en það var haldið í fé-
lagsheimiii HSK á Sel-
fossi.
8
SKINFAXI