Skinfaxi - 01.02.1971, Blaðsíða 10
Sterkar rætur ungmenna-
félaganna í héraðinu
— Spjallað við Jóhannes Sigmundsson, form. HSK.
Jóhannes Sigmundsson, bóndi og kenn-
ari í Syðra-Langholti í Hrunamanna-
lireppi, hefur verið formaður Skarphéð-
ins s.l. 5 ár, og tók hann við forystunni af
Sigurði Greipssyni.
Skinfaxi náði tali af Jóhannesi nýlega
og var hann þá í miklum önnum við að
undirbúa næsta ársþing HSK ásamt Hirti
Jóhannssyni, ritara sambandsins. Fyrsta
spurningin, sem beint er til formanns
Skarphéðins, hlýtur að verða þannig:
— Hvers vegna hefur HSK um árabil
sýnt betri árangur og unnið öflugra starf
en önnur héraðssambönd?
— Ástæðurnar eru náttúrlega margar,
og ég skal nefna nokkrar. Hér á sam-
bandssvæðinu er mikið af ungu fólki.
Flótti unga fólksins úr sveitunum hefur
bitnað meira á flestum öðrum héruðum
en okkar. Skipulögð og reglubundin starf-
semi ungmennafélaganna á sér langa
sögu og margar hefðir í héraðinu, t. d.
árleg íþróttamót einstakra félaga, íþrótta-
kennsla o. fl. Hér hafa verið traustir for-
ystumenn í félagsmálum ungs fólks og
íþróttamálum. Má í þeim efnum sérstak-
lega geta um Iþróttaskólann í Haukadal
og allt starf Sigurðar Greipssonar og
einnig um starf Þóris Þorgeirssonar bæði
við skólana á Laugarvatni og eins beint
innan HSK, en Þórir hefur verið hinn
íþróttalegi leiðtogi HSK í áratugi. Að-
staða til íþróttaiðkana hefur tæpast verið
betri hér en annars staðar, nema hvað
sundaðstaða hefur víða verið allgóð. En
að síðustu má geta þess, að ungmenna-
félagshreyfingin er mjög rótgróin í hér-
aðinu og á sterk ítök í fólki á öllum aldri.
Nær allt forystufólk í samtökum bænda,
skólamálum, sveitastjórnum og öðrum
samtökum og stofnunum hefur einmitt
fengið sína félagslegu þjálfun í ung-
mennafélögunum og verið þar í forystu.
Þetta fólk kann að meta gildi félaganna
fvrir sveitirnar og héraðið og styður þau.
— Hvers vegna er sambandssvæðið
svona stórt?
— Suðurland hefur lengi verið ein
félagsheild á mörgum sviðum. Búnaðar-
samband Suðurlands, Mjólkurbú Flóa-
manna og fleiri samtök ná yfir Ámes- og
Rangárvallasýslur og reyndar V-Skafta-
fellssýslu líka. Samgöngur eru greiðari en
í mörgum öðrum héruðum og samskipti
mikil og sjálfsögð. Á HSK-svæðinu eru
bæði þorp og sveitir, og teljum við það
síður en svo ókost fyrir sambandið. Að-
stöðumunur er auðvitað nokkur hjá fé-
10
SKINFAXI