Skinfaxi - 01.10.1971, Side 13
Hafsteinn Þorvaldsson, form. UMFÍ.:
I ÁVARP
við setningu
14. landsmóts
I UMFÍ
Góðir landsmótsgestir. Ágæta íþrótta-
fólk og starfsmenn. Heiðraða forusta
bæjarmála á Sauðárkróki. Virðulegu heið-
ursgestir: Árni Guðmundsson og frú,
Niels Ibsen og frú, Jón Þorsteinsson og
frú.
Fyrir hönd Ungmennafélags íslands og
okkur öll, er gistum þennan stað lands-
mótsdagana, flyt ég gestgjöfum okkar,
Sauðárkróksbúum og Skagfirðingum öll-
um, árnaðaróskir í tilefni 100 ára afmælis
kaupstaðarins.
Vöxtur, framtak, og framfarir, eru
áberandi aðalsmerki Sauðárkróks. —
Megi skagfirzkar byggðir blómgast og
eflast um ókomin ár í samræmi við hina
öru uppbyggingu kaupstaðarins.
14. landsmót Ungmennafélags Islands
er að hefjast. íþróttaæska hinna dreifðu
byggða kemur hér saman til fjölbreyttari
ke])pni en nokkru sinni fyrr og mun í
ríkum mæli í leik og starfi njóta þeirrar
glæsilegu aðstöðu sem hér hefur verið
komið upp af einstakri framsýni og
dugnaði á ótrúlega skömmum tíma.
Þakkir ber að færa öllum þeim aðilum
sem hér hafa unnið að gerð og fram-
kvæmd þessara glæsilegu íþróttamann-
virkja.
111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
Æska vor mun vígja þessi mannvirki
nú á þessu móti. Megi hinn sanni íþrótta-
andi svífa yfir öllu okkar starfi og glæsi-
leg afrek vinnast í drengilegum leik. —
Þakkir skulu færðar landsmótsnefnd
og stjórn Ungmennasambands Skaga-
fjarðar, svo og starfsmönnum nefndra
aðila, fyrir frábært undirbúningsstarf að
framkvæmd mótsins.
Ungmennafélögin setja nú markið hátt
og stöðugt hærra frá einu móti til annars.
— Þrotlaust undirbúningsstarf undan-
farandi mánaða og ára verður nú leyst
úr læðingi og gerð á því eins konar út-
tekt.
Gerum þennan glæsilega vettvang
íþróttalegrar aðstöðu að lifandi vitnis-
burði um atgjörvi ungmennafélaganna á
íslandi í dag.
Ferðalag að Sauðárkróki er að baki
og geymir margar minningar, tjaldbúðir
keppenda og annarra mótsgesta hafa
risið á borgarmörkum Sauðárkróks, glæsi-
legri en nokkru sinni fyrr, þátttökusveitir
úr flestum byggðarlögum landsins eru
komnar til leiks, vel íþróttum búnar, und-
ir merkjum sinna félaga og héraða. Glæsi-
legir fulltrúar sinnar heimabyggðar á
þessari þjóðhátíð æskunnar á íslandi. —
"■■'111111111111111111111111111111,1111,1 mii,,iii,,,,iiii,i,,,,i,,,iiiI|,i,iiI|III|I||I|Ii|I|Im,,,iiiimmiiimummiiuiuimuimiiiihmnmi iiiiiII,,IIIi,iIII,,III,,IIi,,,i
SKINFAXI
13