Skinfaxi - 01.10.1971, Síða 29
!IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIimillltlMlllllllllllllllllllllllllÍlilllllllÍlllHIIIIIIÍIIIIIIIIIIiillllllllllÍllllllliÍllllllllÍIIII<HlllilÍÍfllÍIIIÍÍI<llHlllllli
1 Skemmtileg frjálsíþróttakeppni |
UTANBÆJARFÓLKIÐ
SIGRAÐI
Úrvalslið Reykvíkinga í frjálsum íþrótt-
um háði keppni við iið utanbæjarmanna
dagana 11. og 12. september síðastliðinn.
Var þetta eitt fjölmennasa og skemmileg-
atsa frjálsíþróttamót sumarsins, en sex
keppendur voru i hverri grein, þrír frá
hvorum aðila. Lið utanbæjarmanna var
skipað 55 íþróttamönnum og konum úr
15 héraðssamböndum og tveim iþrótta-
bandalögum og má af því ráða hve erfitt
er að ná slíku liði saman, enda var nokk-
uð um forföll. Af þessum 55 iþróttamönn-
um voru 50 úr röðum ungmennafélaganna,
2 frá Vestmannaeyjum og 3 frá Akureyri.
Þetta var harðsnúið lið og baráttugiatt,
enda fór svo að Reykvíkingar, þrátt íyrir
alla sina landsliðsmenn, höfðu enga
möguleika gegn þessu liði og lokastiga-
UMSK-stúlkurnar kepptu fyrir „Landið“ i
4x100 m. boðhlaupi og sigruðu á nýju ís-
landsmeti. Frá vinstri: Kristin Björnsdóttir,
Hafdís Ingimarsdóttir, Jensey Sigurðardóttir
og Kristín Jónsdóttir.
talan varð Reykjavik 288 og landið 299.
Þrátt fyrir það að í liði landsins voru for-
fallaðir 6 kappar. Þau Sif Haraldsdóttir,
Sigurþór Hjörleifsson og Jón Pétursson
frá HSH, Páll Dagbjartsson frá HSÞ, og
slæmt flugveður varð þess valdandi að
Þorvaldur Ben. komst ekki frá Vest-
mannaeyjum og Skarþhéðinn Larsen frá
USÚ kom of seint til keppni. Við sem
störfum að framgangi íþróttanna úti á
landsbyggðinni getum glaðst yfir þessum
árangri og margt lært af þessari keppni.
í karlaliði utanbæjarmanna var aðeins
einn landsliðsmaður og var þvi fyrirfram
búizt við yfirburða sigri Reykjavikur i
karlagreinum, en það fór öSruvísi, keppn-
in varð miklu jafnari en menn bjuggust
við og stigin urðu Reykjavík 203, landið
166, eða rúmlega 30 stiga munur.
í kvennagreinum komu Reykjavikur-
dömurnar hinsvegar mjög á óvart og stór-
bættu sinn fyrri árangur í mörgum grein-
um. Raunar má segja að mót þetta hafi
veiið merkilegt fyrir það hve margir
bættu sinn fyrri árangur, t. d. voru sett
tvö íslandsmet, 12 héraðsmet og i 34 til-
fellum bættu menn sinn fyrri árangur.
Þetta á að sjálfsögðu sína skýringu, t. d.
hin góða aðstaða til keppni á Laugardals-
vellinum, sem utanbæjarfólkið nýtur
mjög sjaldan.
Mót þetta var í alla staði vel heppnað
og ánægjulegt, enda stærsta frjálsíþrótta-
mót sumarsins að landsmótinu undan-
SKINFAXI
29