Skinfaxi - 01.10.1971, Síða 43
ERTU í ÆFINGU?
Athugaðu púlsinn, þá færðu svarið
Nú þegar augu fjölda fólks eru að
opnast fyrir því hversu heilnæmt það er
að hreyfa sig, vil ég benda ykkur öllum
á mjög einfalda aðferð til að mæla þol
ykkar og ásigkomulag mikilvægasta
vöðva líkamans, hjartans.
Áratugum saman hafa íþróttamenn vit-
að, að þeir geta nokkurn veginn gengið
úr skugga um æfingu þá, sem þeir eru í,
með reglulegum mælingum á þyngd
sinni og athugunum á púlsinum — þeir
telja hve hár hann er. Púlsinn gefur þýð-
ingarmiklar upplýsingar um, hvernig
hjartað starfar og segir okkur óbeint frá
því í hvernig þjálfun — æfingu — við
erum.
Fullorðinn maður, sem ekkert æfir og
ekki ])arf að leggja af mörkum líkamlegt
erfiði við vinnu sína, eða þá mjög lítið,
hefur liggjandi í hvíldarstöðu 60—80
pulsslög á mín. Verkamaður, sem vinnur
erfiða vinnu en æfir ekkert þar fyrir utan,
hefur nokkuð lægri púls, eða um 50—60
slög á mín. Þeir, sem æfa íþróttir, hafa
oftast mun lægri púls, eða undir 50 slög-
um, og þeir, sem allra bezt eru æfðir, eru
með um 40 slög eða minna. Fyrir kemur
að menn hafi púls, sem ekki mælist nema
35 slög eða jafnvel minna, án þess að
verða fvrir óþægindum af því, en það eru
vfirleitt mjög vel og langæfðir menn.
Allar æfingar verður að byggja þannig upp . . .
SKINFAXI
43