Skinfaxi - 01.12.1976, Síða 32
Hafsteinn Þorvaldsson, form. UMFÍ:
Ungmennafélögin í
í nútíma þjóðfélagi
Hafsteinn Þorvaldsson, form. UMFÍ,
var heiðursgestur á sumarhátið
UMSB að Húsafelli um verzlunar-
mannahelgina í sumar. Flutti hann
þá hátíðarræðu þá sem hér fer á
eftir.
Góðir samkomugestir------—- .
Ég vil byrja á því að þakka UMSB þá
viðurkenningu sem það sýnir UMFÍ með
því að bjóða mér fyrir hönd forustu-
manna heildarsamtakanna að koma hér
fram sem heiðursgestur á þessari mynd-
arlegu Húsafellshátíð ■— 1976.
Þessa dagana er að Ijúka framkvæmd
Olympíuleikanna', en þeir hafa sem kunn-
ugt er farið fram í Montreal í Kanada.
Þar hafa svo sannarlega skipst á skin og
skúrir, töp og sigrar, ekki einungis i röð-
um íþróttafólksins heldur og miklu frem-
ur varðandi undirbúning leikanna og
framkvæmd.
Óttast menn það að mótmælin og at-
burirnir í Montreal kunni að draga dilk
á eftir sér og það jafnvel svo, að sú göfuga
hugsjón sem að baki liggur þessari alls-
herjarhátíð íþróttaafreksmanna af gjör-
valli heimsbyggðinni riði til falls. Til-
gangur atburðanna er af sumum talinn
helga meðalið, og í heimi vaxandi of-
beldishneigðar og hryðjuverka verða allar
hugsjónir fótum troðnar og léttvægar
fundnar.
Það er hlaupinn ofvöxtur í allt sem við-
kemur framkvæmd og undirbúningi leik-
anna, og því aðeins fáum stórveldum
kleift að sjá um framkvæmd þeirra.
Sem betur fer tekst íþróttafólkinu þó enn
að halda í heiðri samhjálpinni og sam-
gleðinni þrátt fyrir harða keppni, og eftir
hverja Olympíuleika verður heimssagan
alltaf kapítulanum ríkari, sem greinir frá
því óvænta í leik og starfi.
Ég hygg að alþjóðleg íþróttahreyfing
standi nú að loknum þessum Olympiu-
leikum í Montreal á merkum tímamótum
í margvíslegum skilningi, og þar er ís-
lensk íþróttahreyfing ekki undanskilin.
Allir íslenskir íþróttaunnendur og áhuga-
menn bíða og spyrja: hvaða lærdóm
koma forustumenn íslenskra íþróttamála
með heim frá Montreal? Að sjálfsögðu
verða þeir reynslunni ríkari, ekki síður
en íþróttafólkið okkar.
Og við skulum vona að eftirleiknum
verði hagað með hliðsjón af þessari
reynslu í framtíðinni, og forustumenn-
irnir og íþróttafólkið fái verðugan stuðn-
ing til þess að geta uppfyllt óskir landa
sinna um betri frammistöðu næst. Eins
og málin standa hjá okkur í dag, er ekki
óeðlilegt að menn spyrji: eru ekki ýmis
nærtækari verkefni fyrir okkur að huga
að en senda tiltölulega fjölmennt lið lítt-
undirbúinna íþróttamanna til þessarar
32
SKINFAXi