Skinfaxi - 01.04.1979, Síða 5
Það var kátt yfir mönnum í allsherjamefnd.
v*ð til baka, það var því uppselt í þessu happdraetti,
8*tu félögin ekki komið út sínum skammti urðu þau
að greiða sjálf þá óseldu. (Athugandi fyrir happ-
draetti UMFÍ næst). Það var ekki á mönnum að
*}eyra að þetta fyrirkomulag hefði fallið þeim illa.
Ég ætla ekki að nefna miðaverð það var svo há tala
að ég gleymdi henni strax.
Farið til Danmerkur
Þegar fjárhagnum hafði verið bjargað brugðu 20
f^lagar úr UMSB sér til Danmerkur í hálfsmánaðar-
reisu þar sem dvalið var sína vikuna hvora á Sjálandi
°8 Jótlandi í boði danskra ungmennasamtaka.
Er meiningin að framhald verði á þessum sam-
skiptum og hingað komi hópur Dana á næsta sumri.
Afram mefl peningana
Um verslunarmannahelgina síöustu gekkst sam-
úandið fyrir ,,gleði” mikilli sem kennd var við Borg-
arfjörð. í gleði þessari tóku um 1100 manns þátt og
var gleði þeirra mikil að sögn, og ekki síðri varð
8leði þeirra stjómarmanna UMSB minni þegar þeir
fóru að telja í kassanum að „gleðinni” lokinni.
íþróttir og aftur íþróttir
Og svo var það mál málanna; íþróttirnar. Á því
sviðinu var langmest starf unnið, og þá einkum við
frjálsar íþróttir, en þetta starf skilaði dágóðum
árangri og á örugglega enn eftir að skila sér ef áfram
yerður haldið á svipaðri braut. Þeir Borgfirðingar
8erðu vel við frjálsíþróttafólk sitt og fóm m.a. með
það í æfmgabúðir norður í Eyjafjörð og var vel látið
að dvölinni þar. Fríður flokkur íþróttafólks mætti á
Landsmóti UMFÍ á Selfossi og hafnaði þar í 6. sæti í
heildarstiga-útreikningi. Fjölmörg frjálsíþróttamót
v°ru haldin innan UMSB og á þess vegum en þar ber
h®st Meistaramót íslands 14 ára og yngri sem fram
fór á Borgarnesvelli.
SKINFAXI
Að lokum
Þetta læt ég nægja um skýrslu stjómar og reyndar
um þing UMSB að sinni, en þess má geta að reikn-
ingar sambandsins voru jákvæðir um rúm 700 þús.
Það er ætlun mín að fara betur niður í reikninga hér-
aðssambanda síðar og þá þannig að samanburður
fáist á ýmsum megin tek ju- og gjaldaliðum.
G.K.
Helgi Bjarnason gjaldkeri UMSB.
Eiríkur Jónsson fráfarandi sambandsstjóri.
5