Skinfaxi - 01.04.1979, Blaðsíða 14
líta á það að ungmennafélagar eru ekki bara ung-
mennafélagar, þeir eru líka menn.
Eins eru ungmennafélög ekki bara ungmennafé-
lög, sem lúta stjórn UMFÍ, sem sýnist sjálfri sér
hossað í hvert sinn og eitthvert félag eða héraðssam-
band efnir til stórátaka. Heldur eru ungmennafé-
lögin fólkið í landinu. Þetta eru opin félög. Félög
sem veita félögum sínum ómetanlegan þroska ef vel
er að málum staðið.
Hvert einasta félag lýtur sinni eigin stjórn, og það
veltur á henni fyrst og fremst hvort starfið er árang-
ursríkt.
Þess vegna er ég hiklaust þeirrar skoðunar að
Skinfaxi eigi að vera meiri spegill samtíðarinnar en
nú er. Hann á að vera meðvirkandi afl til að þroska
fólkið, en ekki bara hlutlaus frásagnaraðili sem
skýrir frá orðnum hlutum.
Sjálfsagt vildu nú einhverjir fá nánari skilgrein-
ingu á því sem ég á við.
Við getum byrjað á því að lesa gamla Skinfaxann
frá fyrstu eftirstríðsárunum. Þar má lesa merkar
greinar um ýmis vandamál samtímans. Færustu
menn, flestir ungmennafélagar, fjalla um málefni
Hafsteinn Jóhannesson formaður frjálsíþróttadeildar Breiöabliks stjómarmaöur UMFÍ og í framkvæmda-
stjórn UMFÍ, á þaö til aö gerast letilegur mjög. Hér hefur Siguröi Geirdal þótt nóg um og skellt af honum
mynd.
14
SKINFAXI