Skinfaxi - 01.10.1979, Síða 18
AÐALSTEINN PÁLSSON
Norræn samvinna 1979
í sumar var hin árlega norræna ung-
mennavika haldin í Finnlandi, nánar til-
tekið í nágrenni Kokkola á NV-strönd-
inni.
Fyrir þá sem ekki hafa heyrt getið um
þessa Norrænu samvinnu, þá skal þess
getið að Nordisk samorganisation for
Ungdomsarbejde skammstafað NSU
samanstendur af 12 félagssamtökum
innan Norðurlanda. Samtök þessi gang-
ast fyrir norrænni samvinnu ýmiss konar,
og hæst ber eiginlega hin norræna ung-
mennavika. Skipst er á að halda hana á
öllum Norðurlöndunum. í ár var hún í
Finnlandi og næsta ár í Noregi, þá senni-
lega í Þrándheimi. Flverju landi er heimilt
að senda 20 þátttakendur og hefur ísland
fyllt þann kvóta þrisvar en þrívegis aðeins
náð um 10 þátttakendum, má sennilega
rekja þennan lága þátttakendafjölda til
slælegrar kynningar á samvinnu þessari
meðal ungmennafélaga. Þó hefur UMFÍ
sent árlega út kynningarbréf um þessi
efni, stundum oftar en einu sinni, til
stjórna allra héraðssambanda, það virðist
því miður að lengra fari það ekki. Þaðf
hefur sýnt sig að þeir sem einu sinni hafa
farið vilja ólmir fara aftur. Þannig að
ekki er áhugaleysinu fyrir að fara, þegar
menn loksins hafa farið. Þess má og geta
að fargjöld eru greidd niður um helming
með norrænni styrkveitingu og
þátttakendakostnaði hefur verið stillt í
hóf, þannig að hægt er að komast þetta
mjög ódýrt.
Á næsta ári þarf að gera átak í þessum
málum og ná 20 manna hóp, aldurinn er
17—30 ár, til fararinnar til Noregs.
Annars er þörf á endurskipulagningu
hvað varðar þessa norrænu samvinnu.
Hvet ég ungmennafélaga að spyrjast
fyrir um þetta.
Ungmennavikan
Að morgni 19. júlí síðastliðinn héldu 9
ungmennafélagar til Finnlands á norræna
ungmennaviku, nánar tiltekið í nágrenni
Kokkola á NV-ströndinni ásamt Jóhann-
esi Sigmundssyni er fór á stjórnarfund
NSU þar í landi.
Flogið var til Helsinki með viðkomu í
Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Var
komið til Helsinki um kvöld og gist yfir
nóttina. Um kvöldið fóru menn að líta á
borgina í ausandi rigningu og þótti
sumum vandratað eftir hinum illlesanlegu
finnsku götunöfnum, en allt gekk þetta
þó. Snemma næsta morgun var aftur
farið i loftið, en þó ekki átakalaust, og
flogið norður til Kokkola þar sem tekið
var á móti okkur og okkur ekið á
áfangastað, þ.e. á félagsmiðstöðina
Hircikoski um 100 km. fyrir utan K-
okkola.
Fram eftir deginum voru svo þátttak-
endur frá hinum löndunum að koma og
voru allir mættir um kvöldið. Voru menn
almennt þreyttir eftir hinar löngu ferðir.
18
SKINFAXI