Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1983, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.08.1983, Blaðsíða 13
Hér er slappað af í góða veðrinu sem fylgdi okkur allan timann. Notið sólar á ströndinni. haldin á íslandi, þar áður í Danmörku. En nú í ár var hún haldin í Suður-Slésvík í Þýska- landi. Par sem danskur minni- hlut^hópur starfar sem sjálf- stæður aðili að N.S.U. Skilyrði til þátttöku er að vera áhugasamur unglingur á aldr- inum 16 - 25 ára. Markmið vikunnar er að ungmenni á Norðurlöndunum kynnist og starfi saman eina viku á ári til að styrkja tengsl landanna jafnt á þjóðlegum sem á persónu- legum grundvelli. Dagskrá vikunnar í ár var með hefðbundnu sniði. Klukk- an 7.15 var liðið vakið oft á mjög frumlegan máta og morgun- verður snæddur frá 8.00 - 9.00. Þá tóku starfshópar sem þátt- takendur höfðu valið sér, til starfa. Þeir voru: Sönghópur, leiklistarhópur, video og blaða- útgáfuhópur sem jafnóðum sendi út fréttir af viðburðum vikunnar. Og loks sá vinsæl- asti, indíána-keramikhópur. Þetta tók hálfan annan tíma og að því loknu voru fyrirlestrar um sögu og stöðu danska minnihlutahópsins í Þýska- landi, sem stóðu í u.þ.b. klukkutíma hvem dag, vom þeir reglulega gagnlegir og skemmtilegir og fengu gestina til að skilja hina Slésvísku gestgjafa sína og sérstöðu enn betur en áður. Þar á eftir settumst við að hádegisverði og lögðumst á meltuna til kl. 15.00. Var margt skrafað á ýmsum málum og mállýskum meðan sú hvíld entist. En að henni lok- inni hófust ýmsar íþróttir. S.s. krikket, ratleikur og þrauta- leikur. Var þannig gengið frá málum að allir höfðu reynt allt a.m.k. einu sinni í vikulok. Eftir kvöldverð var safnast saman til leikja og annarra skemmtana. Þá notuðu hinar ýmsu hreyfingar innan N.S.U. tækifærið til að kynna sig og starfsemi sína blandaða glensi og glaumi, auk þess sem starfs- hópamir kynntu árangur at- hafna sinna. Margir notuðu líka tækifærið til að troða upp með sér uppákomur sem einatt vom hinar spaugilegustu og enduðu jafnvel með því að ýmsir höfnuðu nauðugir í sundlaug- inni alklæddir. Þar á meðal undirritaður og það ekki að ósekju. Eftir kvöldglensið var diskó- tek sem yfirleitt stóð til kl. 1.00. Fæstir nenntu að fara að sofa þá, heldur sátum við iðulega við söng og mas til klukkan 4.00 eða jafnvel lengur því tíminn var naumur og margt að heyra frá nýjum vinum frá fjarlægum löndum. SKINFAXI 13

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.