Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1983, Blaðsíða 17

Skinfaxi - 01.08.1983, Blaðsíða 17
við hana. Því legg ég meiri áherslu á eins og tveggja- mannabáta. Optimistbáturinn er grunn- bátur í siglingastarfi. Hann er upprunninn í Florida 1948. Arið 1954 var byrjað að smíða hann í heimahúsum í Danmörku og síðan hafa Danir verið forystuþjóð í að útbreiða hann í heiminum. Optimistbáturinn er viðurkenndur hjá Alþjóða- siglingasambandinu sem grunnbátur í siglingastarfi fyrir böm og einnig af Sameinuðu þjóðunum, sem þroskandi hjálpartæki í bama og ungl- ingastarfi. Haldin em reglulega Islandsmót, Norðurlandamót og Evrópumót á Optimist. Að undanfömu hefur Optim- istnefnd Siglingasambands íslands sent út til 160 aðila upp- lýsingar um Optimistbátinn og þjónustu, sem nefndin stefnir að að veita þeim aðilum, sem áhuga hafa á að nota Optimist- bátinn í starfi sínu. Gögn hafa verið send öllum æskulýðsráð- um, íþróttaráðum, öllum lík- legum félögum og félagasam- tökum og sumarbúðum í land- inu. Ef einhverjir fleiri hafa áhuga á Optimiststarfi fyrir böm og unglinga í sínu byggðarlagi, geta þeir fengið umrædd gögn hjá greinarhöf- undi. Heimilisfangið er: Hverfisgata 7, 220 Hafnar- fjörður. Sími 50370. Stefnt er að því, strax á næsta vetri, að bjóða upp á leið- beinendanámskeið í siglingum Flipper seglbátur er mjög hentugur unglingabátur í félagsstarfi. og steypun báta úr trefjaplasti, með það í huga að starfið út um landið geti farið vel af stað og heimamenn geti viðhaldið og endumýjað kennslubátakost sinn í heimabyggð og verið með námskeið fyrir áhugasama foreldra í steypun á bamasegl- bátum. Nú í vetur verða fáanleg mót af kajak og Optimist og í athugun er að fá mót af Flipper og jafnvel Europaseglbát, sem er einsmanns seglbátur fyrir stálpaða unglinga, mjög viður- kenndur og almennur í Evrópu. Einnig er í athugun að fá til Iandsins mót af 4 manna róðra- bát úr trefjaplasti, til nota í unglinga og fjölskyldustarfi. Til greina kemur einnig að fá umraédd mót leigð til viður- kenndra leiðbeinenda. Allar upplýsingar um þessi mál veitir greinarhöfundur fúslega, ef óskað er. Ritað þann 1. júlí fyrir Skinfaxa. SKINFAXI 17

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.