Skinfaxi - 01.08.1983, Side 18
Þráinn Hafsteinsson skrifar um
Inngangur.
Keppni í 1. deild Bikarkeppni
FRÍ fór fram 16. og 17. júlí s.l.
Sex mestu frjálsíþróttaveldi
landsins leiddu saman sína
bestu íþróttamenn til keppni í
rigningarsudda fyrri daginn og
vindbelgingi þann seinni.
Keppt var á frjálsíþróttavell-
inum í Laugardal, sem orðinn
er ósköp tætingslegur. Gerfi-
efnið á hlaupabrautunum
meira og minna ónýtt og undir-
lagið svo misheppnað að braut-
imar liggja í öldum allan
hringinn. Pá em allar merk-
ingar á vellinum daufar og
gefur það tilefni til að halda að
viðhaldi vallarins sé ábótavant.
Liðin.
Að þessu sinni höfðu ÍR, KR,
FH, UÍA, HSK og UMSE rétt til
þátttöku í 1. deild. Sigur ÍR var
fyrirfram talinn ömggur og eins
var annað sætið talið nokkuð
tryggt fyrir KR. Aðalátökin
myndu því verða milli FH, UÍA,
HSK og UMSE lun að verjast
fallinu. Þessi fjögur lið vom
talin hafa mjög jöfnum liðum á
að skipa, en UÍA þó því sterk-
asta, ef einhvem mun væri
hægt að greina.
Fyrri dagur.
Ljóst þótti strax eftir fyrstu
keppnisgreinina að Eyfirðingar
Bikarkeppni FRÍ í 1. deild.
myndu eiga erfitt uppdráttar.
Aðalsteinn Bemharðsson aðal-
uppistaða liðsins sá sér ekki
fært að keppa. Við þetta var sem
allur vindur væri úr liði UMSE.
Hin liðin börðust hins vegar af
öllum mætti um hvert stig. ÍR
tók snemma afgerandi forystu,
en KR og UÍA skiptust á um
annað sætið. HSK og FH vom
mjög áþekk í 4. og 5. sæti lengst
af, en UMSE langneðst.
Staðan eftir fyrri dag var þessi:
ÍR 87, UÍA 70, KR 68, HSK 57,
FH 55,5 og UMSE 37,5 stig.
Seinni dagur.
UÍA og KR héldu áfram
sókninni um annað sætið allan
seinni daginn. Fyrstu og einu
mistök UÍA liðsins komu þó í
veg fyrir að silfurverðlaunin
yrðu þeirra. í næst síðustu
grein mótsins missti boð-
hlaupssveit karla í 1000 m boð-
hlaupi boðhlaupskeflið og varð
að hætta keppni. Lið UÍA
hafnaði því í þriðja sæti og er
það mjög góður árangur hjá liði
sem er að keppa í fyrsta skipti í
1. deild.
Austfirðingar komu á óvart í
mörgum greinum, en ekki var
síður athyglisverður sá
keppnisandi og samstaða sem
þeir sýndu báða daga mótsins.
Forráðamenn UÍA og Austfirð-
ingar allir geta verið stoltir af
frammistöðu liðsins, ekki síst
vegna þess að þama er að skila
sér árangur af góðu unglinga-
og uppbyggingarstarfi undan-
farinna ára.
HSK liðið átti á brattann að
sækja, vegna þess að fjóra
landsliðsmenn vantaði í liðið.
Samstaða keppnisliðsins og
dyggur stuðningur klappliðs
HSK tryggði liðinu þó fjórða
sætið. Það urðu því lið FH og
UMSE sem féllu niður í aðra
deild. Lokastaðan varð þessi:
ÍR 165,5, KR 118,5, UÍA 116,
HSK 111, FH 101,5 og UMSE
67,5 stig.
Athyglisverð afrek.
Mesta afrek mótsins var án
efa stórglæsilegt kringlukast
Vésteins Hafsteinssonar HSK.
Hann bætti íslandsmet Erlend-
ar Valdemarssonar frá 1974
(64,32) og kastaði 65,60 m.
Vésteinn sigraði einnig í kúlu-
varpi og hafnaði í þriðja og
fjórða sæti í spjótkasti og
sleggjukasti. Brynjúlfur Hilm-
arsson UÍA var í algjörum sér-
flokki í millivegalengda- og
langhlaupum. Sigraði léttilega í
800 m, 1500 m og 5000 m hlaup-
unum. Egill Eiðsson UÍA
sigraði í 200 m hlaupi á 22,54
sek. og var drjúgur í öðrum
18
SKINFAXI