Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.08.1983, Side 24

Skinfaxi - 01.08.1983, Side 24
Bikarkeppni FRI í 3. deild Guðjón Ingimundarson tók saman. Bikarmót FRÍ, 3. deildar- keppnin, var háð á Sauðárkróki laugardaginn 16. júlí. Veðra- hamur gekk yfir Iandið um þessa helgi, einkum þó Vest- firði og Norðurland svo að fjall- vegir sumir urðu ófærir og fór veðrið ekki að öllu framhjá Sauðárkróki. Þennan sama dag hófst Sumarsæluvikan rómaða með flugdegi, en flugsýningar fórust að mestu fyrir vegna veðurs. Veður til íþróttakeppni var þó skaplegt fram eftir degi en varð óyndislegt er á daginn leið. Þátttakendur voru frá 8 héraðssamböndum og var keppnin skemmtileg og tölu- vert tvísýn og varð ekki séð fyrr en í lok keppninnar hvert sambandanna hlyti sigur, en endanlegur sigurvegari varð þó UMSS með 121 stig, HSÞ hlaut 114 stig í 2. sæti en UDN 101 stig í 3. sæti. Tvö efstu liðin UMSS og HSÞ flytjast upp í 2. deild og keppa þar á næsta ári. Það kemur ekki á óvart og er alveg í samræmi við spár manna. Hins vegar kemur nokkuð á óvart hversu sterkt lið UDN er. Ánægjulegt er að sjá að UIO er komið með frjálsíþróttalið, en þar hafa frjálsar íþróttir lítt verið stund- aðar á undanfömum áram. Einnig er ánægjulegt að UNÞ skuli hafa sent lið, en allt of dauft hefur verið yfir þeim að undanfömu. Lið KA var ekki með að þessu sinni, lið sem fyrir nokkram árum var með þeim sterkustu á landinu. Einnig vantaði lið USVS og USÚ, sem hefðu orðið nokkuð framarlega í stiga- keppninni hefðu þau mætt til leiks með sitt sterkasta fólk. Úrslit: Hér verður aðeins birtur árangur þriggja fyrstu í hverri grein. Mótstjóri Reynir Pálsson, f ormaöur UMSS ásamt Guðríði Ólafsdóttur, stökkst jóra. 24 100 m hlaup karla: sek. I. Bjarni Jónsson. UMSS 11,6 2. Jens Hólm. HVÍ 11,9 3. Valdemar Gunnarss. HHF 12.0 Kúluvarp karla: mctrar i. Hallgrímur Jónss. HSÞ 12,29 2. Helgi Björnsson. UDN 11,16 3. Magnús Bragason. HSS 10,88 Hástökk kvenna: metrar. i. Dagbjört Leifsd. HVÍ 1.58 2. Björg Árnadóttir. HSÞ 1.45 3-4. Kristín Skúladóttir. UDN 1.40 3-4 Jensína Lýösdóttir HSS 1.40 Langstökk karla: metrar. i. Kristján Þráinsson. HSÞ 6.60 2. Gylfi Árnason. UNÞ 6.28 3. Gunnar Sigurðsson. UMSS 6.23 100 m hlaup kvenna sck. 1. Ragna Erlingsd. HSÞ 13.0 2. Ingibjörg Guöjónsd. UMSS 13.4 3. Dagbjört Leifsd. HVÍ 13.6 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.