Skinfaxi - 01.12.1987, Qupperneq 28
Afmœli UMFÍ
megi íþróttum meira í endurhæfingu og
meðferð þeirra sem lenthafa í vandræðum
vegna fíkniefnaneyslu (Kelly og Baer
1987). Því væri rétt að kanna hvort meiri
áhersla á íþróttir í slíku endur-
hæfingarstarfi skilaði ekki betri árangri
en nú næst.
Lokaoró
Gildi íþrótta í nútímasamfélagi er mjög
margþætt. Þær veita stórum hópum fólks
hina mestu ánægju, bæði þeim sem iðka
þær sem tómstundagaman og eins þeim
sem njóta þeirra sem skemmtiefnis í
fjölmiðlum eða á vettvangi. Á síðustu
árum hefur athygli manna mjög beinst að
gildi íþróttaiðkunar fyrir andlegt og
líkamlegt heilbrigði og benda rannsóknir
til þess að líkamsrækt og íþróttir séu
veigamikill þáttur í nútíma heilsugæslu.
Þá benda rannsóknir til þess að iþróttir
hafi einnig uppeldislegt gildi (Þórólfur
Þórlindsson 1987). Eins og sjá má af
þessari upptalningu er gildi íþrótta í
nútímasamfélagi mikið. Ekki verður
betur séð af því sem að framan er sagt en
að þeim fjármunum sem varið er til
íþróttastarfsins sé vel varið. Þeir skila sér
að öllum líkindum margfalt til baka í
bættri andlegri og líkamlegri heilsu.
Hér að framan nefndi ég sérstaklega
fjögur atriði sem ég tel að vert sé að gefa
gaum í því skyni að auka áhrif
íþróttastarfsins í baráttunni við ávana- og
fíkniefni. í stuttu máli má segja að þessi
fjögur atriði feli í sér þrjár megin breytin-
gar. í fyrsta lagi krefjast þær stóraukinnar
og bættrar aðstöðu til íþróttaiðkunar. í
öðru lagi gera þær kröfur um það, að
hugsjónir þær um heilbrigði og hreysti
sem lengst af hafa fylgt íþróttaiðkun séu
aftur hafnar til vegs og virðingar. í þriðja
lagi er um að ræða nokkra áherslu-
brey tingu á starfi ásamt kröfum um aukna
menntun íþróttakennara og leiðbeinenda.
Af því sem að framan er sagt má ráða að
verulega þarf að styrkja íþróttafélögin
eigi þau að hafa bolmagn til þess að sinna
þeim mikla fjölda sem vill leggja stund á
íþróttir. Þá blasir við sú staðreynd að
mikið vantar upp á að þeim mikla fjölda
einstaklinga sem áhuga hefur á því að
iðka íþróttir sér til skemmtunar og
heilsubótar, innan íþróttafélaganna eða
utan, sé búin til þess nauðsynleg aðstaða.
Að því marki ber okkur öllum að stefna.
Buhrmann, H. 1977, “Athletics
and deviance: An examina-
tion of the relationship be-
tween athletic participaúon
and deviant behavior of
high school girls.” Review
of Sport and Leisure 2
(June)17-35.
Gill, D.L. 1986, “Psychological
Dynamics of Sport”, Hu-
man Kinetics Publishers,
Inc., lllinois
Kelly, FJ. og Baer, J.D. 1987,
Physical Challenge as a
Treatment for Delin-
quency”. I Sport Sociol-
ogy, Contemporary Them-
es, ed. A. Yiannakis og fl.
Þórólfur Þórlindsson, 1987,
Uppeldi og íþróttir -
nokkrar rannsóknar-
niðurstöður um samband
íþróttaiðkunar unglinga,
námsárangurs og reglu-
semi. í Samfélags-
tíðindum.
Ræktun lýðs og lands
saga Ungmennafélags íslands 1907 -1982
Ungmennafélag Íslands75ára
1907-1982
Gunnar Kristjánsson tók saman
Við viljum minna ykkar á þessa
bók sem er nauðsynleg fyrir alla
þá er vinna að og fylgjast með
málefnum ungmennafélags-
hreyfingarinnar.
Þessi bók er til sölu hjá héraðs-
samböndum, stjórnarmönnum
UMFÍ og á skrifstofu UMFÍ.
Bókin kostar sem fyrr
aðeinskr. 1000
28
Skinfaxi