Skinfaxi - 01.12.1987, Blaðsíða 34
Iþróttahátíö
UMSB 75 ára ungmenni
Íþróttamótí tilefni 75 óra afmœlis Ungmennasam-
bands Borgarfjaröar tókst svo vel að ókveöiö
hefur veriö að gera mótiö framvegis að örvissum
viöburði
Það var mikið um dýrðir þann sjöunda
síðasta mánaðar í íþróttamiðstöðinni í
Borgamesi. Þávarhaldinþaríþróttaháu'ð
um það bil 250 bama og unglinga í
héraðinu í tilefni þess að Ungmennasam-
band Borgarfjarðar er 75 ára á þessu ári.
Það er óhætt að fullyrða að það var
nokkuð mikið í fang færst að ætla sér að
halda á einum degi íþróttamót á þar sem
búast mátti við allt að 300 þátttakendum í
tólf íþróttagreinum. Það kom þó ekki í
veg fyrir að mótið yrði haldið og er
skemmst frá að segja að það tókst mjög
vel.
Keppnisgreinamar voru badminton,
borðtennis, frjálsar íþróttir (langstökk án
atrcnnu, hástökk með atr., kúluvarp og
víðavangshlaup), knattspyrna,
körfubolti, skák, og sund (bringusund,
skriðsund, baksund).
Keppt var í fimm aldursflokkum, frá 8
til 15 ára, ogþau lið sem tókuþáttí mótinu
vora fyrst og fremst frá skólunum í
héraðinu. Ingimundur Ingimundarson,
framkvæmdastjóri UMSB og skipu-
leggjandi mótsins, sagði að keppendur
hefðu sjálfsagt orðið mun fleiri en raunin
varð á, því krakkamir hefðu verið að
koma allt fram á síðasta dag til sín að skrá
sig til kcppni. Það gekk hins vegar ekki
upp því skráningu þurfti að vera lokið
viku fyrir mótið svo mögulegt væri að
skipuleggja það með sómasamlegum
hætti.
Mótið hófst klukkan níu á laugard-
agsmorgni með því að sýslumaður
Borgarfjarðar- og Mýrasýslu, Rúnar
Guðjónsson, setti mótið. Einn
aðstandenda þess sagði að eftir á séð
hefðu þau í raun verið ótrúlega bjartsýn og
að sjálfsögðu lært margt á þessu. Sumt
hefði farið úrskeiðis en þegar á heildina
væri litið hefði það tekist svo vel að þau
Framkvœmdastjórinn afhendir
verölaunapeninga. "Hver skyldi
núeigaþennan?"
34
Skinfaxi