Skinfaxi - 01.06.1988, Síða 5
Neisti , ungmennafélagiðáDjúpavogi,
gefur út lítið og látlaust fréttabréf annað
veifið sem dreift er í öll hús í þorpinu. í
einu þeirra er sögð nokkuð skemmtileg
saga af samkomuhúsi staðarins, “Neista”.
Ungmennafélagið átti húsið í ein 60 ár,
allt þar til það var selt hreppnum til
niðurrifs, 1986. Eysteinn Jónsson,
fyrirrverandi ráðherra, kom nokkuð við
sögu þegar þetta hús var byggt. Mörgum
finnst það sjálfsagt sýna gott fjármálavit,
að lítið ungmennafélag komi sér upp heilu
samkomuhúsi sem þjónar byggðinni í
áratugi og er síðan selt fyrir 400.000
krónur. Fréttabréfshöfundur Neista segist
ekki hafa öruggar heimildir en segir
einhvern hafa sagt sér að til að fjármagna
þessa byggingu hafi verið gefin út
“skuldabréf ’ sem fólk gat keypt. Neðst á
bréfinu stóð hins vegar þessi litla
athugasemd; “Skuldabréf þetta verður
aldrei innleyst.”..
Molar
Knattspyrnuskóli er að verða
nokkuð útbreidd og vinsæl mennta-
stofnun.Einn slíkur hefurhafiðstarfsemi
sína á Neskaupsstað. Skóli þeirra Þróttara
er ætlaður krökkum á aldri 6. flokks í
knattspyrnu eða 10 ára og yngri. Þetta er
þriggja mánaða skóli og leiðbeinandi þar
er Birkir Sveinsson. í fyrra voru 50
krakkar í skólanum
og er búist við fjölgun
í sumar. Fyrir
þátttakendur í
skólanum er rúsínan í
pylsuendanum
sjálfsagt fótbolti sem
Þróttarar gefa
hverjum
þátttakanda...
I byrjun mars síðastliðins hófst vinna
við gerð nýs íþróttahúss á Seltjamarnesi
sem kemur eflaust til með að þykja
glæsilegt. Hið nýja íþróttahús verður
staðsett við hlið þess gamla. Það verður
20x40 m. að flatarmáli, þ.e.a.s. lögleg
keppnisstærð fyrir handknattleik en svo
var ekki hægt að segja um gamla húsið.
Ahorfendastæði verða í húsinu fyrir um
800 manns og verða þau báðum megin við
völlinn. Líkast til hefurekkert íþróttahús
verið byggt enn hér á landi með
áhorfendapöllum beggja vegna vallarins.
En það sem vekur mesta athygli við nýja
húsið er um 156 fermetra fimleikagryfja.
Gryfjan er bráðnauðsynleg fyrir æfingar í
fimleikum. Slíkgrytja hefur hvergi fun-
dist í íslenskum íþróttahúsum. Enn annað
sem vekur athygli er að húsið verður vígt
í ársbyrjun 1989. Skammur
byggingartími það. Þessi bygging verður
auðvitað bylting í fþróttaaðstöðu Sel-
tyrninga en mikil þrengsli hafa verið við
gamla húsið, bæði í tíma og rúmi...
Sundsamband íslands hefur veg
og vanda af nokkuð óvenjulegri keppni
sem til stendur að halda næsta haust, líkast
til eftir Ólympíuleikana í Seoul. Um er að
ræða keppni milli ungmennafélagannaog
íþróttafélaganna í sundi. Eins og áður
segir hefur ekki verið ákveðið
nákvæmlega hvenær keppnin verður
haldinogekkiheldurhvar. En eitt er.víst,
að það verður spennandi keppni. Meira
um þetta síðar...
Sumarstarfið er hafið víðast hvar
hjá héraðssamböndum og félögum. Hjá
UMSS varfrjálsíþróttaliðiðítveggjadaga
æfingabúðum á Feykisvelli við Stóru
Akra í Skagafirði í byrjun júní. Gísli
Sigurðsson, frjálsíþróttakappi, fór þar
fyrir fólki. Dró það meðal annars í
gönguferð á fjöll. Þá eru fyrirhuguð
íþrótta- og leikjanámskeið við Sólgarða í
Fljótum síðar í sumar. Sólgarðar bjóða
upp á ýmislegt til leikjanámskeiða og
sagði Gísli sem er framkvæmdastjóri
UMSS, í samtali við Skinfaxa að
hugmyndin væri að vera þama með
hestaleigu, dorgveiðar og fleira
skemmtilegt auk íþrótta og leikja...
Glímumenn eru stöðugt að þessa
dagana. Eitt af því sem þeir hafa nú
komið í kring er að glíman verður tekin
til kynningar á Leikjanámskeiðum
Reykjavíkurborgar sem hófust 1. júní
síðastliðinn.
Glímusambandsmenn hafa einnig rætt
við æskulýðsfulltrúa í Garðabæ,
Kópavogi og Hafnarfirði og telja þeir
víst að krakkar í þessum bæjarfélögum
kynnist þessari elstu fþróttagrein Islend-
inga. Síðasta sumar kynntust 350 böm
glímunni á þennan hátt. Það verður því
um að ræða þreföldun á þessari tölu í
sumar. Þá er ráðgert að fara aftur í þá
skóla sunnanlands næsta haust sem farið
var í með kynningu síðasta vetur. Um
þessar mundir er verið að undirbúa
kynningu í um 35 skólum sem ekki hefur
verið farið í áður. Margar fyrirspurnir
hafa borist um þessar kynningar og mun
Glímusambandið reyna að sinna öllum
óskum um kynningar og sýningar...
Ekki láta þeir Glímusambandsmenn
staðar numið með kynningu þá sem hér
er að framan nefnd. Þeir verða í sumar
með "Glímusumarbúðir" á Lýsuhóli á
Snæfellsnesi. Hér er reyndar um að ræða
nokkuð hefðbundnar sumarbúðir en
glímunni verður að sjálfsögðu gert hátt
undir höfði...
Skinfaxi
5