Skinfaxi - 01.06.1988, Side 7
Molar
Ársþing UÍA var haldið á Reyðar-
firði, 7. maí síðastliðinn. Þingfulltrúar
voru 68 frá 19 félögum og er þetta
fjölmennasta þing í sögu sambandsins.
Þing UÍA hafa lengi staðið í tvo daga, nú
stóð það hins vegar í einn dag og breytti
nokkuð svip þingsins. Nýr formaður U1A
var kjörinn á þinginu, Hrafnkell Kárason
frá Egilsstöðum, sem tók við af Adolf
Guðmundssyni frá Seyðisfirði. Helsta
mál þingsins var erfið fjárhagsstaða sam-
bandsins. í nýlegu fréttabréfi UÍA segir
Magnús Stefánsson, framkvæmdastjóri
UÍA: “Þingið tók ekki eins ákveðið á
þessu ináli og nauðsynlegt hefði verið en
samþykkti að formannafundur skyldi
haldinn á haustdögum og skyldi hann
fjalla um fjárhagsstöðuna. Við gerum
miklar kröfur til UÍA og veltum fyrir
okkur þeirri spurningu hvemig sam-
bandið geti orðið félögunum að sem
mestu gagni. En önnur spuming hlýtur að
leita á hugann: Hvað getum við - allur
hinn mikli fjöldi í aðildarfélögum UÍA -
hvað getum við gert til að lyfta sam-
bandinu yfir þessa erfiðleika?”...
Grindahlaupiö hjáUSVSfórfram
sunnudaginn 12 júní s.l., og var hlaupið
gegn um Vestur-Skaftafellssýslu frá aus-
tri til vesturs. Um 65 hlauparar tóku þátt
í því, og var það fólk á öllum aldri, frá 5
ára og upp úr. Mjög gott veður var fyrri
hluta leiðarinnar, en á Mýrdalssandi
fengu hlauparamir vindinn í fangið, og
var mikið ryk og sandfok á kafla. En þegar
komið var úti í Mýrdal var orðið lygnara,
en þá var komin súld og var til loka
hlaupsins. Það tók slétta 12 tíma að fara
þessa leið, og var hlaupið yfir uþb. 350
grindur á leiðinni. Aheitasöfnun er í
gangi, og verða þau notuð til að kaupa
grindur fyrir USVS....
Jón Sævar Þórðarson er þjálfari hjá
USVS í sumar, og er hann tekin til starfa
af fullum krafti. Hann ferðast milli allra
félaga sambandsins, og á fyrstu æfin-
gunum voru langsamlega flestir hjá Umf.
Skafta, en þar mættu 30 mans. Þess má
geta að félagsmannafjöldinn er eitthvað
yfir 40. Stóru félögin meiga þess vegna
fara að vara sig ef svona heldur áfram...
Hrafnkell Kárason, nýr formaö-
ur UÍA.
Skaftfellingar gegn Jóni
Laugardaginn 16 apríl síðastliðinn var
haldið fjöltefli í félagsheimilinu
Tunguseli í Skaftártungu á vegum USVS
og var Jón L. Ámason fenginn austur til
að tefla. 12 keppendur mættu til leiks.
Fólk hafði gaman af en forráðmenn
fjölteflisins voru heldur óánægðir með
þátttökuna.
Fyrir nokkrum árum var haldið í Vík í
Mýrdal fjölmennasta helgarskákmót sem
haldið hefur verið á landinu til þessa.
Keppendur voru um eitt hundrað talsins,
og mikill skákáhugi í sýslunni á þeim tíma
og margir drífandi einstaklingar. Re-
glulegar skákæfingar voru í Vík og á
Kirkjubæjarklaustri, og í Álftaveri og í
Skaftártungu komu menn saman á
bæjunum á kvöldin og tóku skák.
Það kom þeim USVS mönnum nokkuð á
óvart að ekki skyldu mæta fleiri.
Þeir ætla þó að halda ótrauðir áfram og
hafa upp á hinum mikla skákáhuga fólks
á svæðinu. Fyrirhugað er að halda
héraðsskákmót innan tíðar.
Einn keppandi náði að gera jafntefli við
Jón L. Ámason , en það var Salvar
Júlíusson frá Jórvík. Hann er einn af þeim
sem voru í skákinni fyrir nokkrum árum,
og virðist engu hafa gleymt og ekki týnt
niður áhuganum. Aðrir keppendur voru
þessir: Gísli Vigfússon, Flögu, Gísli
Vigfússon, Skálmarbæ, Jafet Vigfússon,
Skálmarbæ, Ámi Böðvarsson, Jórvík,
Júlíus Amar Birgisson, Norður-Hjá-
leigu, Skjöldur Hilmarsson, Kirkju-
bæjarklaustri, Sverrir Gíslason Flögu,
Hilmar Gunnarsson Kirkjubæjarklaustri,
Sveinn Gunnarsson, Flögu, Sigurður
Ómar Gíslason, Hemru og Páll Pétursson,
Vík.
Skinfaxi
7