Skinfaxi - 01.06.1988, Blaðsíða 10
Breiðablik
Þroskandi starf.
"Þetta er mikið uppeldisstarf." Kristján Halldórsson á æfingu.
Rætt við Kristján
Halldórsson, þjálfara hjá
knattspyrnudeild
Breiðabliks.
Kristján Halldórsson þjálfari hjá
Breiðablik er einn þeirra sem vakið hefur
athygli fyrir góðan árangur í starfi sínu
við þjálfun yngri flokka Breiðabliks.
Skinfaxi náði tali af honum þar sem
hann var með stráka í 5. flokki á æfingu á
Vallargerðisvellinum í Kópavogi.
Kristján hefur haft nokkuð sérstakar
aðferðir við þjálfun. Hann var fyrst
spurður í því hverju þær fælust.
Hann brosti við þessari spumingu og
sagðist nú ekki viss um hversu sérstakar
þær væru.
“Jú, kannski”, svaraði hann svo. “Það
var nú þannig að ég var hér eitt sinn með
eina til tvær æfingar yfir veturinn hjá
strákunum íyngri flokkunum. Mérfannst
það ekki nóg til þess að halda þeim í
æfingu. Mér fannst ég ekki sjá þær
framfarir sem ég vissi að þessir strákar
gátu sýnt. Ég tók því upp á því að útbúa
eins konar heimanám. Ég lét þá fá
svolítið prógramm til að æfa sig eftir
heima. Þessar æfingar fólust einkum í því
að strákarnir framkvæmdu ýmis konar
boltaæfingar í einrúmi, úti í garði eða úti
á plani. Ég sagði þeim að þeir yrðu að
“læra heima” og fylla út ákveðið form um
hvað þeir hefðu framkvæmt af æfing-
unum. Þetta form hefur komið mjög vel
út. Þeir sem koma vel út eftir veturinn er
verðlaunaðir og þeir keppast yfirleitt við
á æfingum.
Ég lít þannig á þetta að það hefur mest
að segja fyrir unga drengi að læra
boltatækni. Auðvitað verða þeir að fá
útrás fyrir leikþörfina og því verður að
spila á æfingum líka. En ef þeir ná ekki
tækninni vel á strik á þessum aldri verður
það afskaplega tilviljunarkennt hvernig
það gengur síðar meir. Það er alveg ljóst
að ef á að setja 20 stráka út á völl og segja
þeim að spila eins og við vitum að margir
þjálfarar gera í yngri flokkunum, verða
alltaf nokkrir strákanna sem snerta
boltann kannski 3 til 4 sinnum í leik. Hvað
læra þeir á því? Afskaplega Iítið, held ég.
Reynslan af þessu formi sem ég nefndi
áðan er mjög góð. Ég gæti bent þér á ótal
drengi sem hafa náð þroska í fótboltanum
með þessum hætti. Það má nefna Arnar
Grétarsson til dæmis, bróður Sigurðar
Grétarssonar, gamals Blika sem nú leikur
í Sviss. Arnar er nú 16 ára og leikur með
3., 2. og meistaraflokki. Hann hefur
haldið þessu áfram í gegnum árin og gerir
það enn, eftir því sem ég best veit, að æfa
sig heima með bolta úti í garði, einn.
Ég legg einnig áherslu á aga og
stundvísi. Enda væri annað ekki
mögulegt þegar maður er með eina 40
gutta á æfingu eins og núna. Strákamir
hérna vita að þeir verða að mæta á réttum
tíma, einbeita sér vel á æfingum og hlusta
á það sem verið er að segja.”
-Nú er kominn pólskur þjálfari til
Breiðabliks, Grzegorz Bielatowics, sem
þjálfaði áður í Vestmannaeyjum. Hvern-
ig líst Kristjáni á samstarfið við hann?
“Mjög vel. Þetta er maður með for-
vitnilegar hugmyndir og árangur hans af
starfinu í Vestmannaeyjum er
eftirtektarverður. Yngri flokkarnir, sem
hann sá mikið um, hafa sýnt miklar
framfarir nú undanfarin ár. Við höfum
rætt mikið saman og ég er spenntur fyrir
samstarfinu. Okkar hugmyndir fara vel
saman, hann mætir vel á æfingar hjá
yngri flokkunum og hefur lifandi áhuga
sem smitar þá sem í kringum hann eru.”
-Nú er nokkuð mikið foreldrastarf hjá
ykkur í knattspyrnudeildinni.
“Já, foreldrar krakkanna eru mjög
virkir. Það eru yfirleitt einhverjir
foreldrar sem aðstoða okkur á æfingum.
Við, þjálfarar og forsvarsmenn deildarin-
nar höldum e.k. árshátíðir með
foreldrunum einu sinni til tvisvar á ári.
Förum út að borða saman og ræðum
málin. Svona foreldrastarf er geysilega
mikilvægt fyrir jákvæða þróun innan
félagsins. Við vitum öll að á æfingum og
í kringum þær fer fram mikilvægt
uppeldisstarf. Þetta er ekki bara leikur og
keppni. Hérer unnið að þroska þátttaken-
danna allra. Við erum okkurmeðvituð um
það sem störfum hér og það eykur gildi
starfsins.”
IH
10
Skinfaxi