Skinfaxi - 01.06.1988, Síða 15
Ómar
"Ég held aö sjaldan eöa aldrei hafi ég unniö meö jafn samstilltum hóp."
Ómar ásamt þeim Baldri Hermannssyni og Tage Ammendrup.
koma svo mikið af ungum krökkum að við
urðum að setja aldurstakmarkanir og
annað til að stemma stigu við að þetta færi
ekki allt úr böndunum. En það var svo að
smám saman, með því að ræða um þetta í
þáttunum sjálfum, myndaðist viss
metnaður fyrir því að eiga sem besta
áhorfendur. Undir það síðasta var þetta
því einnig orðin keppni um það hverjir
ættu skemmtilegustu áhorfenduma.
Eg tel nú, svona eftir á að hyggja, að það
hafi verið Þingeyingamir sem endanlega
brutu ísinn hvað þetta varðar. Þeir
steinlágu fyrir reykvíska liðinu en
stemmningin í salnum var stórkostleg og
þeirra drengskapur var alveg sérstakur.
Með þessum þætti var orðið metnaðarmál
fyrir héraðið að eiga góða áhorfendur.”
Samstilltur hópur
“En mig langar að nefna hópinn sem
vann að þessum þátttum af Sjónvarpsins
hálfu. Eg held að sjaldan eða aldrei hafi ég
unnið með jafn samstilltum hóp. Það
þurfti aldrei að fara að setja í ákveðin
hlutverkaskipti, “Vilt þú gera þetta og þú
þetta.” Það var þarna ákveðinn
miðjukjarni sem vann saman frá upphafi
til enda. Það var eins og hugur manns að
vinna með t.d. þeim Tage Ammendrup,
Ásthildi Kjartansdóttur, Gunnari
Baldurssyni. Gunnar varmeð okkur allan
tímann, maður sem bar kannski ekki
mikið á. Hann var með sviðsmyndina,
stjórnaði myndspurningunum, stjórnaði
mikið áhorfendum. Ég nefni hann
kannski vegna þess að hann var á kafi í
þessu allan tímann þó ekki bæri mikið á
honum. Bara nafn á skjánum fyrir
sjónvarpsáhorfendum.”
“Kvöldvaka þjóðarinnar”
-Nú voru sumir farnir að líkja þessum
þáttum við e.k. “Kvöldvöku þjóðarinnar”.
Þetta var sjónvarpsþáttur númer eitt í
vetur.
“Já, þú segir nokkuð. Kannski. Þetta
hefur snert einhvem streng kannski. Og
þetta var mjög íslenskt”, segir Omar með
áherslu. “Það held ég að hafi mikið að
segja. Sjónvarpið, eign íslensku
þjóðarinnar, var þarna á staðnum, út um
allt land. Fólk áttaði sig líka á því hvað
það er mikilvægt að eiga þessa stofnun og
hvað þarf í raun mikla vinnu og mikinn
tíma til að gera þátt sem þennan svo vel sé.
Ég held að þessir þættir hafi fært
Sjónvarpið sem stofnun mikið nær fólki
um allt land það kunni betur að meta það
en áður.
-Hvað fannst þér nú minnisstæðast úr
þessum þætti, atvik, persónur, vísur t.d.?
“Þetta er nú erfið spuming. Atvikin.
Við reyndum alltaf að láta þessi óvæntu
atvik fylgja. Eins og þegar maðurinn,
hann Hreinn, datt ofan af borðinu. Þegar
ég fann ekki hljóðnemann. Við reyndum
að láta þetta halda sér í þáttunum.”
Viðkvæmar og erfiðar ákvarðanir
“En það verður auðvitað að segjast að
eftirminnilegastur var þátturinn á
Blönduósi. Bæði vegna tæknilegra
örðugleika og vegna þess að einn kep-
pandinn lést stuttu eftir að þátturinn var
tekinn upp. Það voru ákaflega viðkvæmar
og erfiðar ákvarðanir sem voru teknar þá.
Ég ætla ekkert að draga úr því að ég lagði
eindregið til að þátturinn yrði sendur út,
þrátt fyrir þetta dauðsfall og þrátt fyrir
stórkostlegaágallaáupptökunni. Ég vissi
auðvitað að þetta myndi mælast
misjafnlega fy rir en var aldrei í vafa um að
þegar frá liði myndi þetta hafa verið rétt
ákvörðun. Þaðvarekkihægtaðendurtaka
keppnina vegna þess að einn keppandinn
varhorfinn frá. Það varengin leið að segja
til um það að Skagfirðingar myndu tapa
aftur. Þetta var auðvitað erfið ákvörðun
og orkaði tvímælis þá. En nú held ég að
flestir séu mér sammála, að þetta var rétt
ákvörðun.
Það hjálpaði mér reyndar mikið að ég
hafði áður verið með Stikluþátt þar sem
einn viðmælandi minn lést í vikunni sem
þátturinn átti að sendast út. En eftir að
hafa rætt við aðstandendur varð
niðurstaðan sú að þátturinn yrði sjálfsagt
ein bestu eftirmæli sem viðkomandi gæti
fengið. Að sýna þetta viðtal þó svona
óþægilega bæri að. Hið sama var uppi á
teningnum í vetur. Aðstandendur voru
auðvitað ákaflega slegnir eftir þetta. En
þeir voru á endanum sammála um að sjá
hann á skjánum, á einhverri stærstu stund
síns lífs, þar sem hann var aðalmaðurin í
liði sem brilleraði hreinlega.
Aðstandendur voru því sammála eftir
miklar vangaveltur og viðræður við mig
og fleiri, um að þetta yrðu ein bestu
eftirmæli sem .... gæti fengið. Af
þessum ástæðum verður Blönduós þáttur-
inn mér sérstaklega minnisstæður.”
“...yrkja þig í soll”
“En hvað varðar vísur sem eftirminni-
legar geta talist. Það væru kannski vísur
sem ekki voru í útsendingum. Já, það var
ein vísa sem var tabú, bönnuð. EftirFlosa.
Nei heyrðu það má ekki. Flosi er harður
höfundaréttarmaður. Auðvitað virðir
maður það.”
Omar hugsar sig um nokkra stund.
“Bíddu við. Það var eftir að þáttunum
lauk að við Hákon Aðalsteinsson vorum
að yrkja á hvorn annan á skemmtun fyrir
austan. Hann hafði verið að segjaeitthvað
um sollinn fyrir sunnan í vísum í “Hvað
heldurðu.... og ég svaraði honum svona á
skemmtuninni á Egilsstöðum:
Skinfaxi
15