Skinfaxi - 01.06.1988, Side 16
Ómar
HAFMF/ROIMGAR
• ™ fi V/1
Lið Hafnfirðinga. Ómar segir það hafa verið erfitt að hugmyndin var um lið úr 32 héruðum. Sú keppni hefði
ákveða hvernig liðin skyldu vera samansett. "Ein auðvitað orðið allt of löng. Skemmtileg hugmynd samt."
Úr því þú vilt yrkja þig í soll
og oní djúpa tjörn ég svara hlýt,
þeir sem álpast oní drullupoll,
þeir eiga á hættu að drukkna í leir ogskít.
Hákon var sjálfsagt sá sem kom einna
mest á óvart í þessum þáttum. Séra
Hjálmar í Skagafirðinum (“Bólu
Hjálmar”) þekkja nú margir. En ég held
að fáir hafi þekkt Hákon, nema
náttúrulega margir Austfirðingar,
kannski líka Þingeyingar. Hann var lengi
lögregluþjónn á Húsavík. Hákon var
sjálfsagt einn af þeim sem allt í einu spratt
upp og menn sáu að var mjög góður
hagyrðingur og Ijóðasmiður.
Séra Hjálmar hef ég aftur þekkt í mörg
ár. Við ljóðum mikið hver á annan og ég
þvældi út úr honum vísunni í þættinum á
Laugarvatni sem hann orti á Guðberg
Arason:
Hefur brellið hugarþel
haus af dellu bólginn,
annars fellur okkur vel
við eldhúsmelludólginn.”
Alveg sérstaklega vel gerð vísa. En
þetta var spuming. Atti hún að fara í
þáttinn. Og þegar þetta var rökrætt
ljóðuðum við á hvom annan í símann og
skiptumst á ferskeytlum. Hann hringdi í
mig eitt sinn, heilsaði varla en sendi þetta
á mig:
Eg hef stritað ár og öld
ímynd mína skapað
en eftir þáttinn annað kvöld
engu hef að tapa.
Svo lagði hann niður tólið og ég hringdi
eftir augnablik og svaraði í sama formi.
Svona höfum við oft talast við milli land-
shluta.
En svona varð oft margt skemmtilegt til
í þáttunum og út frá þeim. Og tilefnið var
skemmtilegt í þetta skipti. Prófasturinn
hafði áhyggjur af ímynd sinni.”'
Meira af “Hvað
heldurðu?”
-Nú velta margir því fyrir sér, verður
framhald á “Hvað heldurðu?” næsta
vetur?
“Ekki næsta vetur. En það er ekki
ólíklegt að það verði þar næsta vetur. Það
var ákveðið að hafa verðlaunagripinn Far-
andbikar og þar með er auðvitað búið að
negla niður að svona þáttur verði aftur á
dagskránni. Ég held persónulega að það
sé sniðugra að hafa þetta annað hvort ár.
Hann var síðasta vetur og ef menn sakna
hans næsta vetur verður mjög góður
hljómgrunnur fyrir honum þar næsta
vetur. Ég er hræddur um að svona þáttur
á hverjum vetri myndi smám saman missa
aðdráttarafl sitt.”
Omar hugsar sig aðeins um og segir
síðan með áherslu og brosi. “Betra er of
sjaldan heldur en of oft”.”
-Nú hlýtur þetta að hafa verið geysileg
töm hjá þér og þfnu samstarfsfólki
varðandi þessa keppni. Fóru ekki í þetta
einir þrír til fjórir dagar í viku hverri?
“Jú, þetta var mikil törn og ég varð
óskaplega feginn þegar þessu lauk í vor.
Þá var ég búinn að vera fimmtán mánuði
í þessu. En ég var með svo frábært
samstarfsfólk sem tók af mér ákaflega
mikla vinnu. En auðvitað var maður
alltaf með hugann við þetta. Að velta
vöngum yfir ýmsum möguleikum. Eins
og t.d. þegar hauskúpumálið kom upp.
Það kostaði mjög ítarlegar og miklar van-
gaveltur. Atti t.d. að gera Eyfirðinga að
uppbótarliði. Því það er ekki hægt að tapa
með minni mun en jafntefli. Það var
hægt að færa rök að því að þeir hefðu átt
16
Skinfaxi