Skinfaxi - 01.06.1988, Side 17
Hauskúpa Hamlets
Hins vegar féllumst við alls ekki á þau
rök að við hefðum rænt af þeim sigrinum.
Svo er eitt atriði sem er að það er hægt að
hártoga það að Hamlet megi ekki segja
þetta. Frá hendi Shakespeare er ekki orð
um leikmuni. Ekki orð um það á hverju
hann heldur. Þannig að leikstjóri sem
dytti í hug að láta Hamlet halda á
hauskúpu þegar hann segir:”Að vera eða
vera ekki, það er spumingin”, hann má
alveg gera það. Svo er annað sem má
hártoga. í vitund meirihluta fólks er það
viðurkenndur misskilningur sem heldur
velli hvað sem hver segir, að hann horfi á
Ómar
hauskúpuna. í öllum gamanþáttum,
auglýsingum og svo framvegis, alls staðar
utan leikhússins, heldur hann alltaf á
hauskúpu þegar hann segir þessi frægu
orð. Þetta er orðið hálfgert tákn í mennin-
gunni. Hamlet heldur á hauskúpunni og
segir: “Að vera eða vera ekki...”. Ég get
nefnt annan viðurkenndan misskilning
sem er hliðstæður þessu. Ef
kvikmyndaáhorfendur myndu vera
spurðir að því hver sé frægasta, fleygasta
setningin í Casablanca? Þá myndu
sjálfsagt 90 % segja; “Play it again Sam”.
En hvorugurleikarinn, Humphrey Bogart
eða Ingrid Bergmann segir þessi orð í
myndinni. Þetta er misskilningur sem
komst á kreik og hefur ekki verið hægt að
kveða niður. Setningin “Play it again
Sam” er orðið e.k. tákn fyrir Casablanca
eins og “Að vera eða vera ekki...” er fyrir
Hamlet. Asamt hauskúpunni auðvitað!
Svo við Baldur vorum að setja okkur í
stellingar til að verja dóminn en gerðum
það nú samt ekki. Þetta er alveg eins og
þegar dómarinn dæmdi vítaspymu í
fótboltaleik og það reyndist vera haus en
ekki hendi!”
IH
Tölvubókhald fyrir ungmennafélögin
Formaður og framkvæmdastjóri UMFÍ ásamt þeim Tok mönnum.
UMFÍ hefur ákveðið að velja
bókhaldshugbúnað frá TOK,
Tölvuvinnslu og kerfishönnun h.f. Þessi
hugbúnaður gefur ungmennafélögunum
möguleika á að tölvufæra bókhald sitt.
Á síðustu árum hefur orðið geysileg
félagaaukning innan ungmennafélaganna
og mikill vöxtur í umsvifum. Jafnframt
þessu hefur bókhaldsþátturinn aukist.
Ljóst var að þörfin fyrir tölvuvinnslu
bókhaldsins var orðin brýn. Því ákvað
stjóm UMFÍ að stuðla að því að valið yrði
samræmt bókhaldskerfi fyrir hreyfin-
guna.
TOK kerfið er búið að vera á
markaðnum í um það bil 5 ár og hefur
mikið verið notað af fyrirtækjum,
endurskoðendum og bókhaldsstofum. Þá
hafa mörg félagasamtök, stéttarfélög og
lífeyrissjóðir þeirra valið þetta kerfi.
Auk þessa mun hreyfingin fá hugbúnað
sem heldur utan um félagatal, félagsgjöld
og gíróseðlaútskrift.
Nú þegar hvert félagið og sambandið af
öðru er að tölvuvæðast, er ljóst að þetta
kemur til með að hafa geysilega þýðingu
fyrir hreyfinguna. Sigurður Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri UMFI, sagði í
samtali við Skinfaxa að þessi samningur
væri ungmennafélögunum mjög
ntikilvægur. “Það eru margir forystu-
menn í félögum víða um land sem hafa
haft samband við mig”, sagði Sigurður,
“og lýst þöri' fyrir hugbúnað sem þennan
til að létta mönnum störfin. Þetta kerfi
léttir mönnum mikið að halda utan um
starfið og hafa gott yfirlit yfir félagana.
Með þessum hugbúnaði er mögulegt að
prenta út límmiða á alla félaga eða hluta
félaga, allt eftir því hvað menn kjósa. Þá
verður hægt að prenta út gíróseðla og svo
framvegis.”
Hvað varðar mismunandi gerðir tölva á
það ekki að vera fyrirferðarmikið
vandamál, segir Sigurður.
“Mörg félög eru að festa kaup á, eða
hafa fest kaup á Macintosh tölvum sem
vinna eftir öðrvísi stýrikerfi en þessi forrit
fráTOKgera. Þaumiðastvið svonefndar
PC tölvur. Tengihugbúnaði á milli þess-
ara tölvugerða fer hins vegar sífellt fram
og ég hef engar áhyggjur af slíku. Félög
og sambönd með Macintosh tölvur munu
einnig njóta góðs af þessum hugbúnaði.”
Sigurður fór með þennan hugbúnað á
Framkvæmdastjóranámskeið UMFI í Vík
í Mýrdal í byrjun júní. Þar voru staddir
framkvæmdastjórar frá flestum
héraðssamböndum og félögum á landinu
og gerði fólk góðan róm að
hugbúnaðinum.
IH
Skinfaxi
17