Skinfaxi - 01.06.1988, Qupperneq 20
usvs
Leiklistin þarf
ekki Lottó
ValgeirIngi Ólafsson ereinn þeirra sem
eyðir ómældum tíma í að skemmta
öðrum. Valgeir Ingi er formaður leik-
deildar Ungmennafélagsins Armanns á
Kirkjubæjarklaustri. Og gjaldkeri í stjóm
Armanns.
“Ég er borinn og barnfæddur hér rétt
austan við Kirkjubæjarklaustur”, segir
Valgeir. “Ég fór í burtu á æskuárum, í
skóla, eins og gengur og gerist. Ég er hins
vegar búinn að vera búsettur hér á Klaus-
tri frá 1981 og kenni við skólann hér á
staðnum. Og puða í leiklistinni.”
Það hefur ekki verið ráðist á garðinn þar
sem hann er lægstur í leiklistarlegum
efnum á Kirkjubæjarklaustri. A
efnisskránni hefur til dæmis verið Galdra
Loftur eftir Jóhann Sigurjónsson,
Sjóleiðin til Bagdað, eftir Jökul
Jakobsson, Skjaldhamrar eftir Jónas
Árnason og nú síðast, í smásjánni, nýtt
leikrit eftir Þórunni Sigurðardóttur.
“Við vorum afskaplega ánægð með
þetta stykki hjá okkur, þótt maður segi
sjálfur frá”, segir Valgeir brosandi. “Þess
vegna var heldur leiðinlegt að það komu
heldur fáir á sýningar að þessu sinni. En
það eru ýmsar ástæður fyrir því.
Tímasetningin hafði sjálfsagt sitt að
segja, það var mikið að gera hjá fólki á
þessum tíma og við gáfum ekki
orðsporinu tíma til að berast af leikritinu
áður en við vorum famir með stykkið í
leikferð um Suðurland og til Reykjavíkur.
En leiksýningar hafa alltaf verið vel sóttar
hér á Klaustri. Þegar við vorum með
Skjaldhamra til dæmis, komu margir
sýningargestir á frumsýningu og síðan
aftur á aðra og þriðju sýningu. Þannig að
við þurfum ekkert að kvarta yfir aðsókn
þegar á heildina er litið.”
-Hvemig gengur að fá unga fólkið til að
taka þátt í leiklistarvinnu?
“Það gengur yfirleitt þokkalega. Það er
mikið leikstarf innan skólans þannig að
það er alveg skiljanlegt að
ungmennafélagið troðfyllist ekki af ungu
fólki tilað leika. Þaðerlíkasamstarfmilli
skólans og Ármanns. Á síðasta ári var til
dæmis sett upp, í samkrulli skólans og
ungmennafélagsins, sýningin “Kötturinn
sem fer sínar eigin leiðir” og á endanum
var farið í sýningarferð til Austurríkis um
sumarið. Þannig að fyrst í haust voru
krakkamir í skólanum alveg tilbúnir að
taka sér svolitla hvíld frá leiklistinni.
Svo heyrði maður það á þeim síðari
hluta vetrar að þau voru alveg tilbúin að
fara að taka til hendinni aftur á þessum
vettvangi. En svo eru krakkamir með
árshátíð og þar er mikið leikið og hver
einasti nemandi kemur fram með eitthvað
Valgeir Ingi utan viö félagsheimiliö á
Klaustri.
atriði. Það gengur aftur ver að fá eldra
fólk en skólanemendur til starfa. Fólk er
eitthvað feimið við þetta. Við gerðum
tilraun með þetta í fyrra. Auglýstum
Leiksmiðju. Fólk vissi auðvitað ekki
nákvæmlega hvað gerðist í svona
leiksmiðju og við gátum þess í
auglýsingunni að það þyrfti ekki að taka
þátt í leiksmiðjunni, gæti komið og fylgst
með. Fariðogkomiðeinsogþað vildi. En
það var lítil þátttaka í þessu.”
-Hvernig er með fjárhaginn hjá
leikdeild Ármanns. Stendur leiklistin
undir sér fjárhagslega séð? Svona í ljósi
lottós til dæmis.
“Við sjáum nú lítið af lottófé. Félögin
hafa samþykkt á tveimur síðustu þingum
USVS að veita fjármagninu að mestu í
sambandið (55%) þar sem félögin eru
ekki svo mörg á svæðinu og
héraðssambandið er því svo stór þáttur í
starfinu. Undanfarin ár hefur starfsemin
verið rekin með því hugarfari að hún
standi undir sér og það hefur hún gert.
Oftast skilað einhverjum hagnaði til
félagsins. Og þegar við vorum með
Skjaldhamra eftir Jónas Árnason var þetta
umtalsverð fjárhæð. En auðvitað er þetta
ekki neitt stórgróðafyrirtæki.”
-En þið hafið auðvitað verið með mikla
fjáröflunarstarfsemi eins og tíðkast.
“Jú, mikil ósköp. Varðandi félagið
almennt. Sérstaklega á meðan verið var
að koma vinnu við íþróttavöllinn hér á
staðnum í gang. Þá var sannast sagna gert
allt sem mönnum datt íhug. Til dæmis tók
fólk sig til eitt sinn og smurði samlokur og
seldi hér í söluskálanum. Þær kölluðust
“Samlokamilli sanda”og runnu úteinsog
heitar lummur. Þetta var nú fyrir tíð
hamborgara og pítunnar og þar að auki
voru þetta einu samlokumar sem voru
seldar í sjoppunni.
Nú við sjáum um félagsheimilið,
Kirkjuhvol, höfum gert það síðan 1982.
Húsið er í eigu Kirkjubæjarhrepps og
Hörgsdalshrepps en ungmennafélagið er
með svo mikla starfsemi í húsinu að
ákveðið var að bjóðast til þessa. Lengi vel
var nokkur ágóði af dansleikjahaldi í
húsinu en það hefur minnkað að
undanförnu. en hér er sem sagt aðsetur
Ármanns. Við höfum unnið mikið hér í
húsinu að viðhaldi
Þannig að þó svo lottó sé komið til leysir
það ekki þann vanda sem menn standa
alltaf frammi fyrir, að hafa takmörkuð
fjárráð. Enn sem komið er þarf leiklistin
ekki á lottói að halda.” IH
20
Skinfaxi