Skinfaxi - 01.06.1988, Síða 21
---------- usvs
"Er í öllum íþróttum
sem ég kemst í"
Jón Geir Birgisson í ungmennafélaginu
Armanni á Kirkjubæjarklaustri er með
efnilegustu íþróttamönnum í V-
Skaftafellssýslu. Hann er 17 ára og kep-
pir í öllum íþróttum sem hann kemst í en
megináherslan verður sjálfsagt á
frjálsíþróttimar í sumar. Hann keppir að
sjálfsögðu í liði USVS í Bikarkeppni FRÍ
í 3. deildinni sem verður haldinn á nýjum
velli Ármenninga í ágúst í sumar.
-Þú hefur verið að þjálfa krakkana hér á
Klaustri, Jón Geir, í frjálsum íþróttum hér
í félagsheimilinu.
“Já, það er rétt ég hef verið með svolítinn
hóp hér á æfingum. Annars get ég nú varla
kallast þjálfari. Ég hefmiðlað þeim af því
sem mér hefur verið kennt frá því ég
byrjaði í þessu og það eru nú ekki nema
tæp tvö ár síðan ég fékk einhverja þjálfun
að marki. Þetta var sæmilegur hópur sem
byrjaði en fór fækkandi eftir því sem á
leið. Annars náði Ármann ágætis árangri
á innanhússmóti USVS í frjálsum
innanhúss sem var haldið í Vík um
páskana. Það munaði aðeins tveimur
stigum að Ármann tæki titilinn
“Héraðsmeistari í frjálsum innanhúss”frá
Drangi, félaginu í Vík. Við höfum ekki
verið svona nálægt því í mörg ár.”
-En nú er vetrarstarfinu lokið. Hvað tekur
við hjá þér í sumar?
“Ég er að fara til Reykjavíkur í vinnu í
sumar.”
-En þú ætlar að taka þátt í 3. deildar keppni
Frjálsíþróttasambandsins sem verður hér
á Klaustri í júlí.
“Já, ég ætla að gera það. Ég er búinn að
vera með æfingaáætlun frá Jóni Sævari
Þórðarsyni frá því í vor og er að vonast til
að komast inn á æfingar hjá einhverju
félaginu í Reykjavík, til að halda mér í
®fingu. Annars hef ég ekki getað æft
nægilega undanfarið. Ég hef verið í
prófum við Fiskeldisskólann hér á Klaus-
tri, það hefur verið nóg að gera þar. Ég var
að klára síðasta prófið í morgun.”
-Hefur þú verið fyrst og fremst í
trjálsíþróttum?
“Nei, það má eiginlega segja að ég hafi
verið í öllu sem ég kemst í. Fótboltinn á
sumrin með frjálsíþróttunum og
körfubolti á veturna, jafnvel blak. Ég
hefði mjög gaman af því að komast í
handbolta, hefmikinn áhuga á honum. En
eina aðstaðan hér á Klaustri er á grasi.
Félagsheimilið hér er allt of lítið. Við
höfum aðeins verið að leika okkur
strákamir hér á grasi.”
-Hvað hefurðu æft frjálsar lengi?
“Að einhverju marki hef ég æft frá
sumrinu '86. En maður hefur verið að
sprikla í þessu svolítið lengur, taka þátt í
héraðsmótum og innanfélagsmótum,
fyrst og fremst til að vera með. Ég hef
aðallega verið í hástökki hingað til. Ég á
best l.BOm.þar. Núerégaðhugsaumað
bæta við tveimur greinum, kúluvarpi og
hundrað metra hlaupi. Ég fékk prógram
hjá Jóni Sævari fyrir 100 metrana en ég
held ég hafi þokkalega tækni í kúluna
líka.”
-Nú sagðirðu áðan að ykkur í Ármanni
hefði gengið vel á innanhússmóti í Vík í
vor. Hvað heldur þú að helst þyrfti að
koma til svo framfarir verði stöðugar á
næstu árum?
Það er náttúrulega aðstaðan. Og hún
batnar auðvitað stórum með þessum velli
hér við Klaustur sem kemst í gagnið í
sumar. Það er stórt skref. Svo þyrfti að
verahérgóðurþjálfari viðloðandi staðinn.
Þá myndi áhuginn aukast. En það má
segja að þetta sé í raun allt að byrja núna.
Fólk er rétt að kynnast því hvað hægt er að
gera á svona litlum stað eins og Klaustri.
Hingað til hafa kannski verið merktar
brautir á sandinum fyrir mót. En aðstaðan
hefur engin verið. Þetta verður spennandi
í sumar á nýjum velli.”
1H
Skinfaxi
21