Skinfaxi - 01.06.1988, Síða 22
usvs
"Þurfum að virkja
unga fólkið meira.''
"Viö höfum einn besta grasvöll landsins hér í Vík í Mýrdal og þaö þurfum viö
aö nýta okkur betur.” Ólafur í USVS búningnum á grasvellinum í Vík.
Ólafur Jakobsson er einn
af bestu íþróttamönnum í
Skaftafellssýslum og auk
þess stjórnarmaöur í
heimafélagi sínu í Vík í
Mýrdal. Hann er hér í
viðtali.
Olafur Jakobsson er einn besti
íþróttamaður Skaftfellinga í dag. Hann er
aðallega í stökkum í frjálsíþróttum en
einnig vel liðtækurblakmaður. Olafurer
19 ára, stundar nám í Menntaskólanum á
Laugarvatni og vinnur í brúarvinnu á
sumrin. Kunnugir segja að hann hafi náð
mjög góðum árangri miðað við hversu
lítið hann hefur æft markvisst.
-Verður þetta ekki dálítið snúið fyrir þig í
sumar, ef þið stefnið á að komast í 2. deild
Frjálsíþróttasambandsins, að komast lítið
á æfingar?
“Það mákannski segja það. En til að byrja
með förum við alltaf heim til okkar á
kvöldin úr brúarvinnunni og þá getur
maður æft eftir kvöldmat. En svo verð ég
að spila þetta dálítið eftir hendinni.”
-Hvenær byrjaðir þú að æfa frjálsar
íþróttir?
“Satt best að segja var ég farinn að keppa
nokkuð áður en ég fór að æfa að ráði, í
skólamótum og héraðsmótum. Eg er bara
nýlega farinn að æfa eitthvað markvisst,
til að mynda eftir æfingaprógrammi. Ég
er kominn með æfingaprógramm frá Jóni
Sævari Þórðarsyni sem verður þjálfari
USVS í sumar. Svo hef ég æft uppi á
Laugarvatni í skólanum. Þar hef ég
aðallega verið í blaki. Ég hef verið
undanfarna vetur í blakliði skólans.”
-Það lið hefur verið nokkuð sigursælt ?
“Jú, við höfum verið á íslandsmótinu og í
Framhaldsskólakeppninni höfum við
unnið mörg ár í röð. Það liggur við að það
sé orðin hefð að Menntaskólinn á Laugar-
vatni vinni Framhaldsskólakeppnina í
blaki.”
-Þú kepptir í blaki á Landsmótinu auk
frjálsíþróttanna. Var Landsmótið ekki
töluverð lífsreynsla?
“Jú, mikil ósköp. Bæði jákvæð og
neikvæð. Ég var búinn að keppa í
langstökki þegar ég meiddist í blakleik, á
föstudeginum. Ég marðist illaog lék ekki
meira á Landsmótinu og missti af öðrum
stökkgreinum sem ég hafði ætlað að taka
þátt í. En það var geysilega skemmtilegt
að vera þama á Húsavík. Þetta var
nokkuð sem ég hafði ekki upplifað áður.
Og það kom enda í ljós að ég var óvanur að
taka þátt í svona stórmótum. Ég hitaði
vitlaust upp og svo framvegis. En ég kom
þaðan reynslunni ríkari.
-Þið hafið nú haft einn besta grasvöll á
landinu í nokkur ár og hafið þokkalegar
aðstæður til frjálsíþróttiðkunar, miðað við
íslenskar aðstæður.
“Já og það er satt að segja nokkuð kyndugt
að það var víst fyrir hálfgerða tilviljun að
hér varð svona góður grasvöllur sem
knattspymumenn segja að sé einn besti
grasvöllur á landinu.
Þannig var að þetta átti að verða
malarvöllur og hann var unninn í upphafi
sem slíkur fyrir einum tíu árum. Svo kom
í ljós að hann lét mjög vel í gegnum sig
vatn og þá var ákveðið að tyrfa hann.
Vorið eftir var síðan garðyrkjuráðunautur
hér á ferð sem skoðaði völlinn og benti
mönnum á hvað hann var virkilegar fal-
legur. Þetta kom fólki nokkuð í opna
skjöldu. Síðar var byggt hús hér við
völlinn en aldrei gengið almennilega frá
því. Nú er fyrirhugað að ganga endanlega
frá því í ár og koma þarna jafnvel fyrir
sturtuaðstöðu ogkannski lítilli setustofu".
IH
22
Skinfaxi