Skinfaxi - 01.06.1988, Blaðsíða 30
Afmæli
Umf. Biskupstungna
80 ára
Ungmennafélag Biskupstungna varð
80 ára hinn 21. apríl sl. á sumardaginn
fyrsta. í tilefni afmælisins var haldin
afmælishátíð í Aratungu og boðið þangað
íbúum Biskupstungna, svo og brottflut-
tum ungmennafélögum.
Rifjuð var upp saga félagsins á fyrstu
árum þess og Skálholtskórinn söng undir
stjóm Ólafs Sigurjónssonar í Forsæti í
Villingaholtshreppi. Félaginu bárust
margargóðargjafiráþessumtímamótum,
frá hreppsnefnd, félögum innansveitar,
stjóm HSK og frá ungmennafélögum úr
nágrannasveitarfélögum.
Formaður félagsins, Jens Pétur
Jóhannsson, heiðraði einn félaga. Það var
Eiríkur Sæland, sem hefur starfað mikið
fyrir Umf. Biskupstungna. Hann var
formaður um árabil og átti stærstan þátt í
að byggja upp öflugt sundstarf innan
félagsins á árunum í kringum 1960, að
ógleymdum þætti hans í byggingu Ara-
tungu en Ungmennafélagið var aðal
driffjöðrin í byggingunni og á stóran hlut
í henni.
Um kvöldið var síðan haldinn
“dansleikur” fyrir yngstu Tungnamen-
nina, 1 árs til 12 ára. Bömin skemmtu sér
vel í afmælinu, dönsuðu og fóru í leiki.
Óhætt er að fullyrða að ungmennafélög
séu nauðsynleg stoð í félagslífi hverrar
sveitar. Starfsemi Umf. Biskupstungna
hefur á s.l. 80 árum spannað mjög víðtækt
svið.
Margir líta á ungmennafélög sem
íþróttafélög fyrst og fremst og rétt er það
að sá þáttur er og þarf að vera stór.
Iðkun íþrótta hefur oft á tíðum verið
mikil. Sund og frjálsar íþróttir æfðar
reglulega, svo og körfubolti, en Umf.
Biskupstungna hefur nær alltaf verið með
í héraðsmóti HSK í körfubolta.
Karateæfingar, skák, bridge og talæfingar
hafa verið stundaðar öðru hvoru að
ógleymdri glímunni sem nú er á uppleið.
Iþróttaþátturinn verður ekki rakinn
nánar hér. Hann væri efni í heila bók því
félagið hefur átt marga afreksmenn bæði í
sundi og frjálsum íþróttum.
En fleira kemur til.
Fyrir 80 árum síðan þegar 30 Tung-
namenn komu saman að Vatnsleysu til að
stofna Ungmennafélagið var öldin önnur.
Fróðlegt er og skemmtilegt að heyra um
starfsemina fyrstu árin. Fundir voru
haldnir 6 á ári hverju og óhætt er að segja
að ólíkir voru þeir því sem nú tíðkast. A
hverjum fundi var rætt um ákveðið
málefni s.s. skólabyggingu, málvemd,
kvenréttindi, bannlög eða vínbindindi.
Niðurlag fundargerðar frá 1. starfsári
Ungmennafélagsins er á þessa leið:
“Þá tóku menn að syngja og dansa.
Einnig var glímt nokkra stund. Klukkan
nálega 2 fyrir hádegi ver tekin hvíld og
borðað. Að því búnu hélt Þorfinnur
Þórarinsson alllangan fyrirlestur um
ljósið.
Síðan var aftur tekið að dansa og því
haldið áfram til birtingar.
Utanfélagsmenn ásamt nokkrum af
félagsmönnum skemmtu sér mestalla
nóttina við spil.
I lok samkomunnar las Viktoría
Guðmundsdóttir upp tvö kvæði eftir sr.
Matthías Jochumsson: “Minni Islands”
og “Þorgeir í Vík”.
Fundi slitið
Viktóría Guðmundsdóttir.”
í þá daga var mikið fyrir því haft að
komast á fundina. Biskupstungur em stór
sveit og klofin að endilöngu af
Tungulljóti, sjaldan var skemmtanir að
hafa svo tímann varð að nýta vel.
Skemmtunum ýmiskonar hefur
Ungmennafélagið staðið fyrir til að gleðja
og auðga andann. Má þar nefna
uppsetningu Ieikrita, sem hefur verið stór
þáttur í starfinu í gegnum árin. Nú síðast
í vetur var í tilefni afmælisins settur upp
gamanleikurinn “Ó þú” eftir þær stöllur
Ingibjörgu Hjartardóttur, Sigrúnu
Óskarsdóttur og Unni Guttormsdóttur.
Sú hefð hefur komist á að
Fimm af heiðursfélögum Umf. Biskupstungna. F.v. Eiríkur Sæland, Einar
Þorsteinsson. Jón H. Sigursson, Eríkur Sveinsson og Stefán Sigurðsson.
30
Skinfaxi