Skinfaxi - 01.06.1988, Blaðsíða 31
Ungmennafélagið hefur séð um 17. júní
hátíðahöldin. Fyrir fáum árum var haldin
hér mikil menningarvaka á hverjum vetri,
svokölluð miðsvetrarvaka sem
Ungmennafélagið gekkst fyrir.
Einn er sá þáttur í félagsstarfinu sem
ekki má gleyma, en það er blaðaútgáfan.
Fyrst er minnst á blað í fundargerð frá
1909 en það dróst þar til í janúar 1911 að
fyrsta blaðið kæmi út. Hét það “Baldur”,
var handskrifað og lesið upp á fundum.
Það kemur út fram til ársins 1941 og síðan
aftur á árunum 1953-1960.
Árin 1963 til 1968 var bryddað upp á
nýjung í blaðaútgáfu Ungmenna-
félagsins. Þá voru gefin út alls fjögur
tölublöð af prentuðu blaði, “Bergþór”,
sem var nefnt svo í höfuðið á Bergþóri risa
í Bláfelli.
Árið 1980 er svo farið að gefa út
fjölritað blað og það nefnt “Litli
Bergþór”, það hefur komið út óslitið
síðan, þrjú tölublöð á ári, lengst af offset-
prentað.
Eins og fyrr kom fram var
Ungmennafélagið aðalhvatinn að
byggingu Aratungu og einnig síðar sund-
laugarinnar. Síðasta stórvirkið er svo
gerð íþróttavallar í Reykholti og verður
hann vígður í sumar í tilefni afmælisins.
Skógrækt hefur frá upphafi verið hluti
af starfinu og þó hún hafi fallið niður um
tíma þá hefur hin síðari ár verið reynt að
planta út trjám og hlúa að þeim sem fyrir
eru á hverju vori.
Göngudag fjölskyldunnar hefur Umf.
Biskupstungna haldið upp á og aldrei fellt
niður síðan UMFI kom honum af stað.
Einn er sá þáttur ótal inn sem hefur y ljað
mörgum í vetrarnæðingnum og ýtt undir
foreldrana að fylgja bömum sínum eftir í
starfinu. Það er fyrirkomulag
fimmtudagskvöldanna. Þá er Aratunga
fullnýtt því auk þess sem sundlaugin er
opin eru íþróttaæfingar fyrir yngri
flokkana, bókasafnið á vegum
Ungmennafélasins er opið og félagið
hefur “opið hús” á setustofu sinni. Þar
geta menn tyllt sér yfir kaffibolla og
haldið áfram að ræða landsins gagn og
nauðsynjar þar sem frá var horfið í heita
pottinum.
I núverandi stjóm eru:
Kjartan Sveinsson formaður,
Róbert Róbertsson gjaldkeri,
Ingibjörg Sverrisdóttir ritari,
Þorsteinn Bragason varaformaður og
Sigurjón Sæland meðstjómandi.
Sigríður J. Sigurfinnsdóttir.
Ferðamenn!
Egilsstaðir eru á krossgötum. Við rekum kjörbúð, söluskála olíuafgreiðslu og tjaldstæði.
Verið velkomin. Kaunfélaa Héraðsbúa
Egilsstöðum
Skinfaxi
31