Skinfaxi - 01.08.1990, Page 22
V I Ð T A L I Ð
hápunkturinn og stefnan er að ná glæsilegum árangri þar.
Of lítið gert fyrir íslenska
afreksíþróttamenn
Hvernig standa íslenskir afreksíþróttamenn samanborið við
þá erlendu?
„Það eroflítið gert fyrir afreksíþróttamenn á Islandi. Þetta eru
fjölskyldumenn sem vinna fulla vinnu og sinna svo æfingum
utan þess og getaþáekki lifaðeðlilegu lífi. Menn verðaað geta
æft á réttum tíma, borðað á réttum tíma og hvílt sig á réttum
tíma. Líkantinn þarf skipulag til þess að geta staðið undirþeim
kröfum sem gerðar eru til hans. Ef menn eru ekki vel hvíldir
þá er meiri hætta á meiðslum og menn ná síður árangri.
Ég bermigoft saman við norskan starfsbróðurminn. Hann fær
800 þúsund króna sty rk á ári frá norska frjálsíþróttasambandinu,
gegnir hálfu starfi, en er á fullum launum fráríkinu. Hann tek-
ur létta æfingu á morgnana og aðra þunga eftir hádegið og get-
ur lifað eðlilegu fjölskyldulífi það sem eftirer dagsins. Það er
ótrúlegt að afreksmenn f hinum ýmsu íþróttagreinum séu ekki
metnireins og stórmeistararnirí skák semeru álaunum hjárík-
inu. Ég tel þá ekkert fremri okkar fremsta frjálsíþróttafólki.
Einar Vilhjálmssonert. d. meðfimmta bestaárangurí spjótkasti
í ár. Afreksmannasjóður ISI er reyndar til, en mörgum virðist
hann ekki starfa eftir neinum reglum og fjárveitingar eru oft
handahófskenndar.”
Lyf í íþróttum
Pétur segist ekki hafa orðið var við lyf í íþróttum, en segist
heyra ýmislegt, þegar ég inni hann eftir því hvort hann verði
var við lyfjanotkun meðal afreksfólks sent hann umgengst á
stórmótum erlendis. En það er ekki vafi á því að lyfin eru til
staðar og nýlegt dæmi um sovéska kastarann Lekov sannar
það. Sá kastari varð uppvís að notkun örvandi lyfja og hann
verður að skila bronsinu sem hann hneppti íSplit. Péturfærð-
ist því upp um eitt sæti.
Þriggja barna faðir á afreksskóm
„Ef ég ætla að ná lengra í kúlunni verð ég að fá meiri tíma til
þess að sinna æfingunt. Við hjónin eignuðumst okkar þriðja
barn í maí og ég er nú í nokkurskonar barnsburðarfríi og það
frí ætla ég að nota vel til að æfa, og sinna stelpunni”, bætir
Pétur við þegar ég hvái og spyr hvort hann ætli bara að æfa í
fríinu.
Ég æfi núna í Orkulind hjá Stefáni Hallgrímssyni fyrrverandi
tugþrautarinanni úr UIA. Hann og Erlendur Valdimarsson
kringlukastari hafa veitt mér mikinn stuðning, Erlendur hefur
veitt mér tæknilega leiðsögn og Stefán styrktarlega. Þá æfi ég
íLaugardalnum og heffengið að sækja hinaog þessa tíma. Við
Andrés bróðir æfum töluvert saman. Ég held að það sé nauð-
synlegt að kúluvarparar hafi æfingafélaga sem veitir aðstoð og
gefur ráðleggingar. Maður verður að æfa með einhverjum,
sérstaklega þegar maður er að lyfta. Við fylgjumst-með hvor
öðrum og leiðbeinum nteð tækni þegar við erum að kasta.
Þetta er fjórða keppnisárið sem ég æfi skipulega allan ársins
hring og ég ætla að halda því áfram í sex til tíu ár í viðbót og
reyna að skapa mér betri aðstöðu, t. d. með því að komast á
samning við stórfyrirtæki. Það er auðvitað bagalegt að þurfa
að eyða besta tíma dagsins í vinnu, þurfa að æfa á kvöldin og
geta ekki verið með fjölskyldunni eins og eðlilegt er, en konan
mín er ski I n ingsrík og kvartar ekki mikið. Ég hef ekki aðstöðu
til þess að æfa eins og þyrfti, þar sem ég þarf að hafa nógar tekj-
ur til þess að framfleyta fjölskyldunni,” segir Pétur að lokum.
Islendingareru svosannarlegaaftailegaámerinnihvað viðkem-
ur stuðningi við afreksíþróttafólk sitt. Margir íþróttamenn
hafa metnað til þess að standa sig, en þeim er ekki gefið tæki-
færi til að stunda íþróttina sem skyldi. Og samt sem áður er
ætlast til þess að þeir séu á heimsmælikvarða. Hvað þarf að
gerast til þess að einhver breyting verði? Er svarið samþykkt
laga á Alþingi þess efnis að afreksmönnum verði gert jafnt hátt
undir höfði og íslenskum skákmönnum? Það væri án efa skref
í rétta átt.
Ákvað að taka þátt í getrauninni
fimm mínútum fyrir lokun
Boðsmót VISA í spjótkasti
var haldið í tengslum við
Landsmót UMFÍ í sumar.
Gestir mótsins gátu tekið þátt
í getraunaleik og getið sér til
um hvert sigurkastið yrði.
Þingeysk stúlka, Sigrún Er-
lendsdóttir, sigraði ígetrauna-
keppninni og giskaði á 78,89
metra,ensigurkastEinars var
78,88 metrar. Að launum
fékkhúnáritaðspjótfráEinari
með nöfnum þeirra sem tóku
þátt í boðsmótinu og Adidas-
galla merktan Visa.
Sigrún er I4ára og eríLitlu-
laugaskóla í Reykjadal. For-
eldrar hennar eru Gréta Ás-
geirsdóttir og Konráð Er-
lendsson, og hún á tvo bræður,
Erlendog Arngrím. „Égbjóst
alls ekki við þvf að vinna, það
var vinkona mín sem dró mig
til þess að kaupa miða fimm
mínútum áður en kössunum
var lokað,” sagði Sigrún þegar
hún var innt eftir ástæðunni
fyrir þátttöku sinni.
Sigrún Erlendsdóttir tekur viö spjót-
inu úr hendi Aðalsteins Pálssonar.
Sigrún stundar íþróttir með
Umf. Eflingu og HSÞ. Henni
finnst skemmtilegast að
hlaupa 400 og 800 metra og
stökkva hástökk og langstökk.
„Ég hef keppt í spjótkasti og
mér finnst gaman að kasta, en
ég er ekki búin að ákveða
hvort ég æfi það rneira næsta
sumar,“ sagði Sigrún þegar
hún var spurð h vort hún ætlaði
ekki að nota spjótið næsta
sumar. „Ég er ekkert farin
að nota spjótið, það stendur
bara í herberginu mínu, en
það eru margir sem vilja kaupa
það af mér”, sagði Sigrún að
lokum.
22
Skinfaxi