Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1990, Blaðsíða 39

Skinfaxi - 01.08.1990, Blaðsíða 39
FRETTIR FRA SAMBÖNDUM Fréttir frá HVÍ Pollarnir og prúð- mannleg framkoma Sumarstarfið hjá Héraðssambandi V- Isfirðinga var mjög fjörugt. Fram- kvæmdastjóri hefur verið í fullu starfi síðan í mars og er það f fyrsta sinn sem framkvæmdastjóri starfar í meira en tvo mánuði á ári. Sumarbúðir voru starfræktar í júní í Hér- aðsskólanum að Núpi. Þátttakendur voru alls 105 á þremur námskeiðum og áhugi mikill. Héraðsmót HVÍ var haldið á Þingeyri þann 23. júní og keppt var í 12 greinum hjá körlum, en 10 hjá konum. íþrótta- félagið Stefnir á Suðureyri sigraði með miklum yfirburðum. Haldin voru þrjú barnamót í frjálsum íþróttum, tvö fyrir 16 ára og yngri og eitt fyrir 12áraogyngri. Mótin voru íumsjá stærstu félaganna, þ. e. Stefnis, Höfrungs og Grettis, en þessi félög hafa þjálfara á launum yfir sumartímann. Pollamót í knattspyrnu var haldið á Núpi dagana 28.-29. júlí og 10 lið mættu til leiks. Voru þaufrálsafirði, Bolungarvík, Þingeyri ogBíldudal. Kepptvarítveimur riðlum og leikin tvöföld umferð. Urslit urðu þau að ísfirðingar báru sigur úr být- um í báðum riðlum, en sérstök aukaverð- laun voru veitt markahæsta leikmanni, efnilegasta leikmanni og þeim sem sýndi prúðasta framkomu. ÚR & SKART Uankastrxti 6. Simi llltíOO Réttur þinn til hnta ELLI LlFEYRIR til bóta Tryggingastofnunar ríkisins, hver er hann? Svarið er að finna í bæklingum okkar. Biðjið um þá. [ BÆTUR TIL EKKNA EKKLA OG EINSTÆÐRA FORELDRA SLYSA- BÆTUR TANN- UEKNINGAR TRYGGINGASTOFN RIKISINS B/ETURI FÆÐINGAR ORLOFI TRYGGI NGASTt RÍKISINÍ ÖRORKU" BÆTUR SJÚKRA BÆTUR ílNGASTOFNUN RÍKISI.NS Tryggingastofnun ríkisins Formaður HVÍ er Birkir Þór Guðmundsson Hrauni I, en framkvæmdastjóri er Þórarinn Hannesson á Núpi, sími 94-8327. Fréttir frá UDN Fjáröflunarleiðir Ungmennasamband Dalamanna og N-Breið- ftrðinga gaf út 20 síðna auglýsingablað til þess að afla fjár vegna ferðar á Landsmótið. Blaðið var borið á hvert heimili á sambandssvæðinu. Mjólkursamlagið í Búðardal studdi við sam- bandið með mat og drykk og einnig Búnaðar- bankinn í Búðardal, sem gaf búninga á knatt- spyrnulið UDN. FormaðurUDN er Rúnar Karl Jónsson íBúðar- dal, en framkvæmdastjóri erGuðríður Brynjars- dóttir. Skrifstofa sambandsins er að Miðbraut 5 í Búðardal, pósthólf 123, sími 93-41428. Fréttir frá UNÞ Landsmótsfjáröflun Fjáröflun fyrir Landsmótið var nteð hefð- bundnu sniði. Gefnir voru út 500 happ- drættismiðar, sem er um það bil einn rniði á hverja þrjá íbúa sýslunnar. Ríllega helmingur miðanna seldist og má það heita þokkalegt. Hagnaðurinn fór nær allur í ferðakostnað keppenda og reiknuðust 4000 krónur fyrir hvern einstakling. Með sölu happdrættis- ntiðanna og hagnaði af þeim, má reikna með að sparast hafi um það bil helmingureðlilegs ferðakostnaðar ef farið er með hópferðabíl. Formaður UNÞ er Eiríkur Jóhannsson Skinnastað, sími 96-52250. Skinfaxi 39

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.