Skinfaxi - 01.12.1990, Síða 6
FRA RITSTJORA
Kæru lesendur.
Ski nfaxi er blað ungmennafélaga
um allt land og markmið þess er
m.a. að fræðafélaganaum starfið,
tengja þá saman og veita
haldgóðar upplýsingar um
aðferðir til þess að ná
markmiðunum um ræktun lýðs
og lands. Þeim leiðum sem við
förum til þess að ná
markmiðunum er hægt að fjölga. Því fleiri leiðir sem
farnar eru, því meiri líkur eru til þess að árangur náist.
í Skinfaxa er nú tjölbreytt efni og er aðalviðtalið að þessu
sinni við herra Ólaf Skúlason biskup íslands. Biskup er
mikill áhugamaðurum íþróttirog segirhannm.a. frá starfi
sínu hjá Ungmennafélagi Keflavíkur á árum áður. Á
síðastakirkjuþingi varnokkuðrættum þjóðfélagnútímans
og þær aðstæður sent börnum eru skapaðar innan þess.
Ólafur svarar m.a. spurningum um það hvernig kirkjan
vilji bregðast við þeim vanda sem algengt er að börn búi
við.
íþróttaslys eru alltíð hér á landi og fyllsta ástæða er til þess
að koma á umræðu um það efni. Samkvæmt nýju
nefndaráliti um almannatryggingalögin er ekki gert ráð
fyrir slysatryggingu íþróttamanna eins og verið hefur.
Verði frumvarpið samþykkt óbreytt á Alþingi fellur niður
slysatrygging íþróttamanna skv. lögunum, án þess að séð
verði að nokkuð komi í staðinn. I Skinfaxa er þetta mál
tekið fyrir og rætt við 15 ára stúlku sem slasaðist í
íþróttakeppni ogfékkekki bæturfráalmannatryggingum.
Vertu með, er grein um göngu- og skokkæfingar. Rætt er
við skokkara úr Mosfellsbæ sem varorðinn 165 kílóog illa
haldinn Iíkamlega, þegar hann dreif sig út að ganga. En
íþróttamenn og aðrir mega ekki gleyma því að nærast. í
Skinfaxaergrein um svonefnt lystarstol, þarsem íjallað er
um einstaklinga, sem eru haldnir ranghugmyndum um
eigin líkama og grenna sig svo mikið að leitt getur til dauða.
Næring hefur mikil áhrif á heilsuna og andlegt og líkamlegt
atgervi fólks. Ef fólk vill koma líkama sínum í betra form
er heillavænlegast að stunda líkamsþjálfun og borða reglulega
fæði sem er rétt samsett af næringarefnum.
Reglurnareru í raun mjög einfaldar; minnkið neyslu sykurs
og matvæla sem innihalda hann, minnkið saltneyslu, borðið
ávexti milli mála þegar þið eruð svöng og hafið hrátt
grænmetissalat meðkvöldmatnum. Borðið fisk, kartöflurog
brauð og forðist að setja of mikið srnjör á brauðið. Borðið
oftar og lítið í einu, frekar en sjaldan og mikið. Borðið
morgunmat, hádegismat, síðdegismat og k völdmat og stundið
góða, alhliða líkamsþjálfun. Látið líða um tvo tíma frá því
þið borðuðuð og þar til æfing fer fram.
Við Islendingar höfum lengi álitið okkur búa við bestu
skilyrði sem þekkjast í heiminum. Og við höfum haldið að
ekkert þyrfti að gera til að viðhalda þeim gæðum sem landið
okkar hefur upp á að bjóða. Nú er hins vegar mörgum Ijóst
að við svo búið má ekki lengur standa. Landið verður
mengun að bráð ef ekkert er að gert. Við verðum að taka
höndum saman ogspornagegnóæskilegumefnum í umhverfi
okkar áður en það er orðið um seinan. Nauðsynlegt er að
fræða almenning um mikilvægi umhverfisverndarog hvetja
til sameiginlegs átaks. Hér á síðunum eru tvær greinar um
umhverfismál, leiðarinn sem Matthías Lýðsson stjómarmaður
í UMFÍ skrifarog grein Björns B. Jónssonarformanns HSK,
Umhverfi okkar.
Um leið og ég óska lesendum Skinfaxa gleðilegra jóla, með
þakklæti fyrir árið sem er að líða, vil ég senda ritnefnd
Skinfaxa og þeim öðrum, sem hafa lagt hönd á plóginn,
sérstakar þakkir fyrir vel unnin og fórnfús störf.
Með kveðju
Una María Óskarsdóttir
Ljósmyndasamkeppni
Skinfaxa
Þátttaka í Ijósmyndasamkeppni
Skinfaxa, um bestu Ijósmynd sem tekin
vará20. Landsmóti UMFÍ íMosfellsbæ
í sumar, var ekki góð. Niðurstaða
dómnefndar var sú að engin mynd var
álitin nógu góð til að hljóta fyrstu
verðlaun.
Dómnefndin ákvað hinsvegar að
verðlauna Ingimar Guðmundsson fyrir
þessa athyglisverðu mynd sem hann
sendi í keppnina. Hún er af Huga S.
Harðarsyni HSK, sem keppti í þríþraul.
Myndin lýsir einsemd einstaklings-
íþróttamannsins.
Einsemd einstaklingsíþróttamannsins. Ljósmyndari: Ingimar Guömundsson.
<
6
Skinfaxi