Skinfaxi - 01.12.1990, Blaðsíða 13
V I Ð T A L
Víndrykkja brottrekstrarsök
Rætt við 20 ára íslenska stúlku, skiptinema í Svíþjóð
Dagmar I hópi skiptinema frá ýmsum löndum (hún er I miðið í fremri röð).
í sumar sem leið fór skiptinemi á vegum
UMFÍ í fyrsta sinn til Svíþjóðar. Það
var Dagmar Viðarsdóttir úr Reykjavík
sem sótti um að fara. Hélt hún af stað
B.júníogdvaldiíSvíþjóðíþrjámánuði.
Það voru 4H-samtökin í Svíþjóð sem
stóðu fyrir ungmennaskiptunum, en 4H
stendur fyrir: Höfuð, Hjarta, Hönd og
Heilsa. Urn 30.000 manns, í um 650
félögum eru skráðir í þessi samtök í
S víþjóð og eru þeir á aldrinum 7-25 ára.
Auk mikils starfs heimafyrir eru
samtökin í sanrstarfi við alþjóða
skiptinemasamtök - IFYE - sem
starfrækt eru í yfir 80 löndum.
Skinfaxi hitti Dagmarað máli og spurði
hana hvernig dvölin hefði verið.
„Ég fékk alveg stórkostlegt ferðaveður
til Svíþjóðarog leistafarvel ámigstrax
og ég leit landið úr lofti. Einn af
starfsmönnum 4H tók á móti mér og
fórum við til Enköping, þar sem ég hitti
hina skiptinemana. Þar dvöldum við í4
daga, bæði til þessað kynnast innbyrðis
og fræðast nánar um áframhaldandi dvöl
okkar í Svíþjóð. Ég dvaldi alls hjá 4
fjölskyldum og kynntist mörgu. Fyrsta
fjölskyldan sem ég bjó hjá átti heima í
Östersund, afar fallegum bæ með um
30.000 íbúa. Fjölskyldan kepptist við
að sýna mér allt það markverðasta og
ferðaðist ég meðal annars bæði til
Finnlandsog Noregs. I Norður-Svíþjóð
var ég hjá tveimur fjölskyldum og eins
þegarég dvaldi á Skáni og í Smálöndum.
Þann 25. júlí lá leið mín til Dalarna, sem
er ein af 25 sýslum Svíþjóðar. Þar
dvaldi ég vikutíma í tjaldbúðum. Um
600 4H félagar voru þar saman komnir,
á sínu árlega móti, ásamt öllum
skiptinemunum. Við mynduðum
sérstakan hóp og var úthlutað svæði
sem við skipulögðum eftir okkar höfði.
Tjöldum var raðað í hring og varðeldur
í miðju. Við byggðum síðan eldhús,
ruslatunnur, borð og snúrur. Allt efnið
til smíðanna varokkuraflient.s.s. spýtur,
snæri og bönd, en enga nagla mátti
nota. Margs konar uppákomur voru
settar á svið og k völdvökur voru á hverju
kvöldi og niikið um að vera. Enginn
hafði tíma til þess að láta sér leiðast því
við vorum vakin kl. 6:30ámorgnanaog
yfirleitt varekki farið að sofa fyrren um
kl. 3:00 á nóttunni. Þaðvarfariðíblak,
ratleiki um nálægt skógarsvæði,
fjallgöngur, keppl í frjálsum íþróttum
ofl. ofl. Þessu móti lauk svo 3. ágúst og
voru allir sammála um að vel hafði til
tekist.”
Voru áfengir drykkir hafðir um hönd á
mótinu?
„Nei, enginn drakk vín og ef einhver
hefði gert það þá hefði hann verið sendur
burt af svæðinu. Þau boð og aðrar
samkomur sem ég fór í voru allar án
áfengis, ég held að krakkar úti í Svíþjóð
drekki ekki eins mikið áfengi og þeir
gera hér heima.”
Eitthvað að lokum?
„Þessi dvöl mín í Svíþjóð varmeiriháttar
og finnst ég v íðsýnni og ser kemmtilegi
reynslu rflcari, enda alls staðar tekið á
móti mér opnum. Ég kynntist fjölda
fólks og svona ferð fer maður ekki
nema einu sinni á ævinni og býr að
henni um langa framtíð. Ég vil nota
tækifærið til þess að þakka UMFI fyrir
að hafa fengið tækifæri til þess að vera
með í þessu.”
Gleðileg jól,
gott og farsælt komandi ár
Þökkum viðskiptin á árinu
Gullsmiðir
Sigtryggur og Pétur
Brekkugötu 5 Akureyri
Skinfaxi
13