Skinfaxi - 01.12.1990, Page 25
FU N DIR
AMBANDSRADSFUNDUR UMFÍ
Ari G. Hannesson veitir viötöku blómakörfu frá UMFÍ fyrir góöan undirbúning sambandsráösfundarins.
27. sambandsráðsfundur UMFÍ
fagnar þeim árangri sem náðst hefur í
að útrýma áfengi og tóbaki úr
keppnisferðum og hvetur ungmenna-
og íþróttafélög, þjálfara og fararstjóra
til að sjá til þess eins og hingað ti 1 a ð
áfengi og önnur vímuefni séu ekki höfð
um hönd, jafnvel þó allri keppni sé
lokið.
27. sambandsráðsfundur UMFÍ
hvetur Islendinga til þess að ferðast
meira innanlands. Einnig hvetur
fundurinn aðila í ferðaþjónustu til
þess að kynna betur möguleika sem
bjóðast í ferðamálum utan
háannatíma.
27. sambandsráðsfundur UMFI
mótmælir því hróplega óréttlæti sem
ríkir í innheimtu á löggæslukostnaði af
samkomum, og skorará dómsmálaráð-
herra og Alþingi að sjá til þess að allir
sitji við sama borð hvað varðar kostnað
við löggæslu vegna skemmtanahalds,
t.d. dansleikja, þorrablótaog útihátíða.
Óhóilegur kostnaður vegna löggæslu,
sem greiða þarf af samkomuhaldara á
ýmsum stöðum landsins, hefur lamað
allt félagslíf og samkomuhald, enda
getur sýslumaður eða fógeti á k v e ð i ð
fjölda löggæslumanna og viðverutíma
þeirra. Samkomuhald víðast íþétt-býli
er undanþegið þessari kvöð.
Sæmundur Runólfsson USVS og
Hafsteinn Pálsson UMSK. Tæplega
líðurnokkursamkomaungmennafélaga
svo að ekki heyrist ljóðstef kveðið.
Guðrún Einarsdóttir USU fór með
frumortar vísur og fara nokkrar þeirra
hér:
Almenningsíþrótt og œskulýðsmál
voru rœdd hér áfundi.
Sást ei þar vín á nokkurri sál
sat ég og vel við það undi.
I pontuna stigu konur og menn.
Margvíslegt Iwfðu að segja.
Er hann að tala maðurinn enn?
Betur efhannfæri að þegja.
Að lokum var slegið á léttari strengi
lyftist þá hrúnin og mannanna geð.
OII við glöddumst og kvöddumst vel og
lengi.
Enginn sá eftir að hafa verið með.
27. sambandsráðsfundur UMFÍ
bendir á að með tilkomu virðisauka-
skatts hafa rekstrargjöld ungmenna-
félagshreyfingarinnar stóraukist. Það
er því krafa ungmennafélaganna að
framlag hins opinbera til hreyf-
ingarinnar aukist að sama skapi eða
virðisaukaskattur verði endurgreiddur
til félaganna.
Þá var samþykkt tillaga að framtíðar-
skipulagi fyrir Þrastaskóg og er
umfjöllun um skipulagið hér í blaðinu.
Ungmennafélagar voru mjög ánægðir
með fundinn, en sumir töldu að hann
hefði mátt vera lengri. Tveir félagar
voru sæmdir starfsmerki UMFI, þeir
Mengun á umhveifi menn rœddu afmóð
mikið þeim fannst fara miður.
Opinn eldur og snarkandi glóð
þykir ei umhverfishollur siður.
Leiðréttingar
Sigrún Konráðsdóttir
I þriðja töðublaði Skinfaxa var farið
rangt með föðurnafn Sigrúnar, en hún
sigraði í getraunakeppni Visa, sem
haldin var í tengslum við boðsmót Visa
í spjótkasti á Landsmótinu í Mosfellsbæ.
Sigrún var sögð Erlendsdóttir, en hið
rétta er að hún er Konráðsdóttir
Erlendssonar.
Til lesenda:
Vinsamlegast tilkynnið um rétt
póstfang. Hringið í síma 91-12546,
14317 eða 16016 eða sendið okkur
tilkynningarkort Pósts og síma.
Heimilisfangið okkar er:
Skinfaxi
Öldugata 14
101 Reykjavík
Skinfaxi
25