Skinfaxi - 01.05.1992, Síða 14
KORFUKNATTLEIKUR
Knáir körfuknattleikspeyjar
Þurfum tæknilega
uppbyggingu frá
grunni
Sveinn Birkir Björnsson er
aðeins 16 ára gamall og
hefur síðastliðin tvö ár spilað
með meistaraflokki Hattar í
1. deild í körfubolta.
„Það var engin starfsemi fyrir
minn flokk og þjálfarinn bauð
okkur yngri að koma og vera með
og ég er sá eini sem er eftir. Þetta
eru mikil hlaup og ég nennti að
leggja þetta á mig og það endaði
með því að ég komst í liðið“, segir
Birkir sem greinilega er mikill
körfuboltaþjarkur.
I fyrra var Birkir valinn í 30
manna unglingalandsliðshópinn í
körfuknattleik.
„Markmiðið er að komast í
landsliðið og geta farið á Evrópu-
mót og unglingamót. En það verður
erfitt og mikil samkeppni, en
maður verður að hafa vilja til þess
að standa sig.
Það er mikil hvatning fyrir mig
að vita af Eysteini svona nálægt,
sem er bæði í landsliðinu í hand-
knattleik og knattspyrnu.
Það sem vantar hér úti á landi
er meiri tæknileg uppbygging til
þess að við, sem eigum heima hér,
getum verið hér, en ekki fyrir sunn-
an. Sumir þessara stráka sem eru í
landsliðinu hafa mjög góða
aðstöðu, t.d þeir frá Suðurnesjun-
um. Þar er öll aðstaða og tæknileg
uppbygging eins og körfubolta-
mann dreymir um og strákarnir þar
eru búnir að æfa síðan þeir voru 6
ára eða yngri."
Hvað er hœgt að gera?
„Aðstaðan hér er ekki slæm, en
það þarf að byrja snemma á þjálfun
og tæknilegri uppbyggingu frá
grunni. Mér finnst að KKÍ ætti að
standa fyrir meiri fræðslu úti á
landi um útbreiðslu körfubolta-
íþróttarinnar, því körfuboltinn er
mikið bundinn við Reykjavík, Suð-
urnesin, Stykkishólm og Sauðár-
krók“, segir Birkir.
Vaiinn besti
körfuboltamaðurinn
Guðjón Bragi Stefánsson er
14 ára og leikur körfubolta
með 8. fl. Hattar. Hann er fjöl-
hæfur og leikur líka knatt-
spyrnu og er í frjálsum
íþróttum. Guðjón hefur
nokkrum sinnum orðið ís-
landsmeistari í frjálsum og
hafnað í öðru og þriðja sæti,
en aðalgreinarnar eru sprett-
hlaup og stökk og stökk-
kraftinn nýtir hann í körfunni
líka.
„Það er gaman að vera í þessu
öllu ef maður hefur tíma, en karfan
er númer eitt og félagsskapurinn er
líka meiri þar.“
Þegar KKÍ hélt körfuboltanám-
skeið á Egilsstöðum í vetur var
Guðjón valinn besti körfuboltamað-
urinn.
„Mér fannst ég ekkert eiga það
frekar skilið en margir aðrir. En
auðvitað er það upphefð fyrir mig
og það hvetur mig til að standa mig
betur. Það er líka mikil hvatning að
vita af Birki“, segir Guðjón Bragi
og á eflaust el'tir að sýna að það eru
fleiri strákar á Egilsstöðum sem
geta komist áfram með körfubolta í
hendi.
14
Skinfaxi