Skinfaxi - 01.05.1992, Qupperneq 18
KNATTSPYRNA
Eysteinn tekur laglega hjólhestaspyrnu.
Er þá bara ekkert við mann-
inn sem er slœmt?
„Ja, kannski það að
hann drekkur ekki brenni-
vín“, bætir Freyr við.
„Sumir hafa örugglega verið pirraðir
út í mig af því að ég hef ekki farið með
strákunum eftir sigurleiki til þess að
detta í það. Og sumum finnst ég örugg-
lega vera hálfgerður félagsskítur, en
menn hafa samt sætt sig við það að ég
mæti ekki“, segir Eysteinn.
„Ég held að þetta sé liðin tíð. Nú líta
strákarnir allir upp til hans og þetta
vandamál ætti að vera úr sögunni", segir
Freyr.
Ef unglingar ákveða að standa fast á
sínu og hvorki reykja né drekka þci verða
þeir að vera sterkir, þannig að þeir geti
samt sem áðurfallið í kramið hjá hinum.
Hvernig fórst þú að því?
„Ég ákvað að láta ekkert á mig fá
þó aðrir hefðu aðrar skoðanir en ég. Ég
hef samt sem áður ekkert á
móti þeim sem hafa ekki
sömu skoðanir, en vil hins
vegar fá að hafa mínar í
friði. Menn töluðu um að
ég væri ekki nógu léttur á
þessu. En þeir vita hvers
vegna ég drekk ekki.“
Hvers vegna ?
„Til þess að ná lengra.
Ég er einn af þeim sem trúa
því að áfengi og reykingar
geti hægt á árangri í íþrótt-
um“, segir Eysteinn sem
hefur sett sér góðar lífs-
reglur og hefur þegar náð
góðum árangri.
Fyrir utan góðar lífsvenjur,
hvernig verða menn fœrir
knattspyrnumenn ?
„Það er bara eitt sem
dugar, það er að vinna og
vinna og gefast ekki upp þó
illa gangi. Þetta kemur allt,
ef maður æfir nógu mikið
þá uppsker maður árangur
erfiðis síns, það er bara
spurning hvenær það verð-
ur,“ segir Eysteinn.
„Félög á Reykjavtkur-
svæðinu koma aldrei til með að fá
Eystein því eftir að hann fer út með
landsliðinu þá verða það stórlið á Italíu
eða þá Bayern Munchen sem vilja fá
hann til sín. Ég spái því að hann slái
Eyjólfi Sverrissyni við og fari beint úr
fjórðu deild og út. Eysteinn getur spilað
fleiri stöður en Eyjólfur og það yrði
mikill fengur fyrir mörg lið að fá hann
til liðs við sig“, segir Freyr að lokum.
kunni greinilega allt það
sem strákur á þessum aldri
gat lært. Þau atriði sem þarf
að laga eins og að snúa
með boltann eru atriði sem
enginn vandi er að laga.
Hann spilar á miðju, er
jafnvígur á báða fætur, góð-
ur skallamaður, duglegur
og reykir hvorki né drekk-
ur.
Hann er hrikalega
metnaðarfullur og leggur
sig mjög mikið fram. Hann
lætur mig vita ef hann er
óánægður með sig eða það
sem hann er að gera. Þá
kemur hann til mín og seg-
ist vera óánægður og segist
geta gert betur. Ég sá það
strax að hann átti heima í
landsliðinu og ég var búinn
að segja við hann í fyrra að
ég ætlaði að reyna að koma
honum inn í landsliðið, því
þar á hann fyllilega heinta.
Eysteinn er yfirveguð
persóna
Hvernig persónu liefur Eysteinn að
geyma?
Hrein Halldórsson margfaldan
methafa í kúluvarpi á árum áður
þekkja fiestir. Hann er umsjónarmaður
íþróttahússins á Egilsstöðum og kynn-
ist þessvegna unglingunum vel sem
koma til æfinga. Hreinn segir að til
þess að ná árangri í íþróttum og ef til
vill í öllu yfír höfuð sé nauðsynlegt að
vera þessi yfirvegaði einstaklingur sem
æsir sig ekki þó að gangi illa.
„Þá veit hann að hann mun ná
Hreinn Halldórsson fyrir utan íþrótta-
húsið á Egilsstöðum.
árangri út á það sem hann er að leggja
inn. Þetta er eins og að leggja inn í
banka og taka síðar út þó að vextirnir
kunni að vera breytilegir. Eysteinn er
þessi yfirvegaða persóna, alltaf rólegur
og samt hefur hann þennan mikla
metnað til að bera og þó að eilthvað
fari úrskeiðis þá hefur það ekki nein
áhrif á hann. Það er þessi persónugerð
sem kemur til með að ná langt.
Það er meira út á þetta en það sent
Eysteinn leggur á sig sem mun skila
honum sern toppfþróttamanni vil ég
meina“, sagði Hreinn og ætti hann
einmitt að geta sagt til um það.
18
Skinfaxi