Skinfaxi - 01.05.1992, Qupperneq 19
ALMENNINGSIÞROTTIR
Táp og fjör á Egilsstöðum
Mikill áhugi er fyrír almennings-
íþróttum á Egilsstöðum og ef-
laust hefur heilsuræktarstöðin
Táp og fjör átt þar hlut að máli,
en hún hefur verið rekin í tvö ár.
Stöðin er í einbýlishúsi á tveim
hæðum. Á efri hæð er móttaka,
salur og þrektæki. Á neðrí hæð er
minni salur fyrir þrekþjálfun,
tveir búningsklefar, Ijósabekkir
og gufubað.
Hlutafélag um starfsemina
var stofnað í september 1989, en
hvernig fara menn að því að efla
íþróttalífið og jafnframt atvinnu-
starfsemina? Skinfaxi hitti Hrein
Halldórsson, stjórnarmann og
Sigurlaugu Jónasdóttur, stjórn-
arformann hlutafélagsins og
spurði hvernig menn færu að því
að koma á fót starfsemi sem
þessari.
„Að stofni til varð þetta til vegna
átaksverkefnis milli Egilsstaða og Seyð-
isfjarðar. Þar kom saman hópur fólks
sem átti að finna
ný atvinnutækifæri
og þetta varð nið-
urstaðan. Við erum
með framkvæmda-
stjóra í fullu starfi
sem sér um dag-
legan rekstur og
síðan ráðum við
leiðbeinendur.
Undirbúningur
fyrir þetta stóð
lengi og það þarf
mikinn tíma og
einnig peninga til
þess að koma
svona á fót. Það er
nauðsynlegt að afla
mikils hlutafjár svo
félagið eigi ekki
þegar í upphafi í
rekstrarerfiðleik-
um. Svona félag er
ekki rekið sem
neitt gróðafyrir-
tæki, enda ekki
ætlað til þess. Við lentum í vandræðum
þegar við vorum að leita okkur að
húsnæði, það var enginn stór salur sem
var falur og þessvegna tókum við þann
kostinn að kaupa einbýlishús, til þess að
tryggja reksturinn enn frekar”, sagði
Sigurlaug.
Hvemig liefur aðsókniti veríð?
„Aðsóknin er sífellt að aukast og
hefur verið nokkuð góð í vetur, unt 25
manns í einu, en það tekur sinn tíma að
komast á fullt skrið. Við höfum verið
með fleiri en eitt stig í leikfimi. þrek-
þjálfun og sérstaka tíma fyrir karlana.
Við höfum reynt að kynna þessa
starfsemi vel og höfum borið haust- og
vordagskrána í hús. Því miður hefur
okkur ekki tekist að tæla marga karl-
menn hingað og meirihlutinn hefur því
verið konur.
Hingað koma alltaf nýjar og nýjar
konur og við erum líka með stóran hóp
af ungum stúlkum úr menntaskólanum.
Við höfum líka verið með sex vikna
námskeið fyrir eldri borgara frá 60-80
ára. Það er gaman að segja frá því að
við fengum fyrirspurn frá þessu fólki
um hvort það væri ekki eitthvað fyrir
þennan aldurshóp í húsinu. Þetta sýnir
þróun í mjög jákvæða átt. Þeim hefur
líkað mjög vel og þegar þau uppgötvuðu
gufubaðið þá áttu þau ekki orð til að
lýsa þægindunum.
I Tápi og fjörí geta menn mætt á
hverjum degi fimm daga vikunnar og
borgað 4200 kr. Við bjóðum líka upp á
tíu tíma kort og staka tíma og þá er hægt
að mæta þegar manni dettur í hug”,
sagði Sigurlaug.
Hreinn Halldórsson hefur ekki hætt
allri íþróttaþjálfun, enda örugglega orð-
inn háður henni fyrir löngu síðan. Hann
hefur verið með þrekþjálfunina í vetur
og segir að það sé sama vandamálið hjá
körlunum og var hjá mörgum konum,
þeir væru sumir smeykir við að koma.
Þeir væru feimnir við að láta sjá sig á
leið í Táp og fjör, þar sem konur væru
líka að æfa. Fólk þyrfti að átta sig betur
á mikilvægi íþróttaiðkunar.
Hreinn og Sigurlaug taka greinilega mikið á!
Skinfaxi
19