Skinfaxi - 01.05.1992, Síða 22
G L I M A
Lárus Kjartansson leggur Kjartan Kárason á laglegum mjaðmarhnykk.
Sunnlenskir glímugarpar
Efnilegasti
glímumaðurinn
Ólafur Sigurðssort úr Grímsnes-
inu er 15 ára gamall og búinn að
æfa glímu síðan hann var 9 ára.
Það æxlaðist þannig að hann fór
heim með vini sínum úr
skólanum og sá átti heima í
félagsheimili og þar æfðu Hvat-
armenn glímu af fullum krafti.
„Eitt kvöldið var glímuæfing og við
fórum niður og fengum að vera með og
ég hef æft glímu síðan. Ég er lfka í
körfu, frjálsum og knattspyrnu, en glím-
an er efst á blaði þó að körfuboltinn og
frjálsar séu líka mjög skemmtiiegar.
Glímuæfingar eru tvisvar í viku og þá
aðallega á veturna, en á sumrin eru
frjálsar og knattspyrna. Mér finnst það
byggja mann betur upp að stunda fleiri
en eina grein.”
Ólafur hefur fimrn sinnum orðið
íslandsmeistari, fimm sinnum HSK-
meistari, fjórum sinnum bikarmeistari,
Ólqfur Sigurðsson.
grunnskólameistari og hann hefur sigrað
í Fjórðungsglímu Suðurlands fimm síð-
ustu ár.
Hann var valinn efnilegasti glímu-
maðurinn árið 1991 af glímusamband-
inu og hann segir það alveg ljóst að ef
menn æfa ekki nógu vel þá bitnar það á
árangrinuni, því það eru margir sterkir,
sem halda sér vel við.
„Það er ekki erfitt fyrir ungan mann
að læra glímu, en það gæti verið erf-
iðara þegar menn eru orðnir eldri og
kannski búnir að læra önnur fangbrögð,
þá væri hætta á að rugla saman.”
Hvaða bragðfinnst þér skemmtilegast að
taka?
„Það hentar mér best vegna stærð-
arinnar að nota vinstri fótar klofbragð
eða lausamjöðm.”
Hefur þú orðið var við að jafhöldrum
þínum annars staðar en hér fiimist hall-
œrislegt að þú sért íglímu?
„Já, ég hef lítillega orðið var við
það, en ástæðan er fyrst og fremst sú að
það fólk hefur ekki kynnst íþróttinni og
veit ekkert hvað það er að tala um.
Þetta er mín íþrótt og mér er alveg sama
og ég læt sem ég heyri þetta ekki”, sagði
22
Skinfaxi