Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.05.1992, Qupperneq 34

Skinfaxi - 01.05.1992, Qupperneq 34
G A M L A R K E M P U R Unnur Stefánsdóttir 35-39 og 40-49 ára. Árið 1986 varð hún í þriðja sæti á Evrópumeistaramótinu í Malmö í 400 m hlaupi. Á síðastliðnu ári setti hún glæsileg met á HM í Finnlandi í 800 og 400 m hlaupum. Unnur varð í þriðja sæti í 800 m á 2.19,35 sek. og var þar fremst í flokki Evrópukvenna. I 400 m hlaupi varð hún í fimmta sæti á nýju Islandsmeti, 60,4 sek. Á Landsmótinu í Mosfellsbæ sigraði hún glæsilega í 400 m hlaupi þá 39 ára gömul á tímanum 60,01 sek. Unnur á meira en tuttugu ára hlaupaferil að baki. 56 ára Guðmundur Hallgrímsson frá UÍA á um fjörutíu ára glæsilegan keppnisferil að baki. Guðmundur hefur keppt nær sam- fleytt á Landsmótum UMFl síðan á Ak- ureyri 1955 og hefur enginn ungmenna- félagi leikið það eftir. Hann hlaut brons- og silfurverðlaun á Norðurlandameist- aramótum árin 1989 og 1991 og á fjöl- mörg íslandsmet öldunga í 50-54 og 55- 59 ára flokkum og keppti á HM 1985 í spretthlaupum. 36 ára Árný Heiðarsdóttir, Umf. Oðni í Vestmannaeyjum, varð Norðurlanda- meistari 1991 í þrístökki kvenna, stökk 9,50 m og telst það mjög góður árangur hjá konu. Hún varð líka í þriðja sæti í langstökki, stökk 5,05 m, sem er Vest- mannaeyjamet. Hún vinnur nú rnark- visst að uppbyggingu frjálsíþróttastarfs- ins hjá Umf. Oðni í Eyjum. 39 ára Sigurborg Guðmundsdóttir, Ár- manni, stóð sig vel í 200 og 100 hlaupum á HM 1991, varð í fimmta sæti í 100 m á 12,99 sek. og í sjöunda sæti í 200 m á 26,86 sek. Hún hefur á liðnum árum verið einn þekktasti grinda- hlaupari hérlendis. 46 ára Trausti Sveinbjörnsson, FH, hefur sjö sinnum fengið verðlaun á Norð- urlandamótum undanfarin ár og verið tvívegis í fjórða sæti í 400 m grinda- hlaupi á Evrópumótum. Trausti varð Norðurlandameistari í 400 m grind 1991. Hann er landsþekktur sprett- og grindahlaupari, var lengst af með UBK. 62 ára Ólafur Þórðarson, Umf. Skipaskaga, hefur í um 40 ár keppt fyrir Austfirðinga og Vestfirðinga. Hann hefur náð góðum árangri á Norðurlandameistaramótum og Evrópumótum í kúluvarpi. 56 ára Jón H. Magnússon, ÍR, hefur í áratugi verið einn besti sleggjukastari hérlendis og íslandsmethafi um skeið. Hann stóð sig með glæsibrag á HM 1991 þegar hann komst í úrslit í kast- þraut. Guðmundur Hallgrímsson 39 ára Friðrik Þór Óskarsson, IR, átti um skeið heimsmet í þrístökki í 35-39 ára flokki þegar hann stökk 14,31 m innanhúss og hann varð einnig Norð- urlandameistari 1991. Hann á að baki óslitinn þrístökksferil. 46 og 38 ára Anna Magnúsdóttir, HSS, og Hrönn Edvinsdóttir, Víði, eiga fjölmörg Is- landsmet í köstum og hafa staðið sig vel á Norðurlandamótum. Fjölmargir aðrir hafa keppt með góðum árangri. en ekki tekið eins mik- inn þátt í stórmótum erlendis. Hvaða einstaklingar eru líkiegastir til stórafreka í öldungaíþróttum á ncest- unni? „Kristján Gissurarson, UMSE, er líklegur til stórafreka í 40 ára flokki í framtíðinni. Hann setti glæsilegt met í stangarstökki 1991, stökk 4,90 og varð Norðurlandameistari með 4,60 m. Sigurður T. Sigurðsson, FH, sem nýlega bætti stangarstökksmet Kristjáns í 5,0 m er líka líklegur til stórafreka. Aðalsteinn Bernharðsson, UMSE, er einn besti sprett- og grindahlaupari á Norðurlöndum og hann á örugglega framtíðina fyrir sér á öldungamótum ef hann gefur sér tíma til þess. Jón Oddsson, KR, hefur einnig sýnt ótrúlega hæfileika í langstökki og þrístökki með því að stökkva í lang- stökki 7,36 m og í þrístökki 14,63 m (meðvindur). Oddný Árnadóttir, Þórdís Gísla- dóttir, Guðrún lngólfsdóttir, Oddur Sig- urðsson og fleiri gætu líka látið mikið að sér kveða í framtíðinni innan öld- ungaíþróttanna. Fleiri mætti nefna, en tíminn verður að leiða það í ljós hvort fólk getur gefið kost á sér til þess að vera með í öldungaíþróttunum. En það er bjart framundan hjá öldungunum þó svo að við þessir gömlu jálkar heltumst úr lestinni. Eg vil hvetja alla „öldunga" til þess að æfa vel, að minnsta kosti þrisvar í viku. Markmiðið á að vera íþróttir fyrir lífíð“, sagði Ólafur Unnsteinsson, ný- ráðinn OL-þjálfari. 34 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.