Skinfaxi - 01.08.1992, Side 4
UNGLINGALANDSMÓT U M F í
Héraðssambandið Hrafnaflóki
vann Fyrirmyndarbikarinn
Fyrsta unglingalandsmót ung-
mennafélaganna (ULM) var hald-
ið með glæsibrag á sambands-
svæði Ungmennasambands
Eyjafjarðar 10.-12. júlí. Hug-
myndin um mótið kviknaði þegar
UMSE-menn héldu meistaramót
14 ára og yngri í frjálsum íþrótt-
um á Akureyri í fyrrasumar.
Aðalmótssvæðið var á Dalvík, en
einnig var keppt á Arskógssandi, Þela-
mörk, í Hrísey og í Svarfaðardal. Mótið
þótti takast mjög vel og voru keppendur
alls 1100, en áætlaður fjöldi mótsgesta
mun hafa verið milli 3000 og 4000, og
ef heimamönnum er bætt við hefur íbúa-
tala Dalvíkur náð 5000 manns þessa
helgi!
Alls tók 21 aðildarsamband þátt í
unglingalandsmótinu, en aðildarfélög
UMFI eru 31. Fjölmargir unglinga-
landsmótsmeistarar unnu sína fyrstu
titla og mörg böm fengu sína fyrstu
reynslu af því að keppa á stóru móti og
sú reynsla á vonandi eftir að nýtast sem
flestum börnum og unglingum á ung-
lingalandsmótum UMFÍ í framtíðinni.
morgunverði,
sem eftirréttur, B
eða bara...bam. I
Svo virðist sem boðskapur umhverf-
is- og hreinsunarverkefna UMFI hafi
skilað sér vel til allra aldurshópa, því
það þótti tíðindum sæta hve hreinlega
var gengið um landsmótssvæðið, í ljósi
þess fjölda sem þarna var saman-
kominn. Fjölmennur flokkur hreinsun-
armanna var sendur á tjaldsvæðið, en
þurfti frá að hverfa um fimm mínútum
síðar þar sem engin fundust verkefnin.
Iþróttanefnd ríkisins gaf veglegan
kristalsbikar, Fyrirmyndarbikar, sem
veittur var HHF fyrir háttvísi og góða
MINJAGRIPIR
Framleiöum margskonar
minjagripi og gjafavörur fyrir
ípróttafélög og önnur
félagasamtök eftir ósk þeirra.
Lyklakippur, styttur,
veggplattar, teskeiðar,
bréfapressur, hálsmen, barm-
nælur, minnisbækur, blýantar
og margt fleira.
Myndaútgáfan
Box 7145 - 127 Reykjavík
Sími 91-20252 - Fax 91-1 1217
Valdimar Gunnarsson framkvœmda-
stjórí HHF tekur við Fyrírmyndarbik-
arnum úr hendi Pdlma Gíslasonar for-
manns UMFI.
umgengni á mótsstað og er þetta far-
andbikar.
Enn er óákveðið hve oft unglinga-
landsmót UMFI verða haldin. Líklegast
er að valið standi um að halda mót á
hverju ári, tveggja eða þriggja ára fresti.
En ólíklegt er að mótin verði haldin
sama ár og landsmót UMFÍ. Hér í
blaðinu eru úrslit mótsins birt og rætt
við nokkra sigurvegara, en fjölmargir
aðrir hefðu líka átt skilið að fá um-
fjöllun fyrir góðan árangur.
4
Skinfaxi