Skinfaxi - 01.08.1992, Page 13
Jóhann kom frá
Finnlandi og sigraði
Nafn: Jóhann Haukur Björnsson, 16
ára, Umf. Biskupstungna, HSK.
Hafnaði í fyrsta sæti í 800 m hlaupi,
4x100 m hlaupi og öðru sæti í 100 m
hlaupi og langstökki. Jóhann Haukur er
nú búsettur í Ekenaes í Finnlandi, en
kom til Islands í sumar og rakaði saman
16 verðlaunum á fjórum mótum sem
hann tók þátt í!
Fyrsta reynsla af íþróttum? „Ég
keppti í fyrsta sinn á innanhússmóti
HSK 1986 og varð í þriðja sæti í
langstökki."
Uppáhaldsgrein? „400 m hlaup.“
Erfiðasti andstæðingur? „Stefán
Gunnlaugsson UMSE.“
Besti árangur:
Langstökk 6,10 m
100 m hlaup 11,70 sek.
400 m hlaup 53,50 sek., HSK- met
800 m hlaup 2,07,88 mín.
300 m hlaup 39,12 sek„ HSK-met
200 m hlaup 23,70 sek., HSK- met
íslandsmeistaramót 15-18 ára 1992
1. sæti 400 m hlaup
2. sæti 100 m hlaup
3. sæti langstökk
íþróttahátíð HSK 1992
HSK-meistari í
100 m hlaupi
400 m hlaupi
800 m hlaupi
langstökki
4x100 m boðhlaupi 17-18 ára
íslandsmeistaramót 22 ára og yngri
4. sæti 200 m hlaup
1. sæti 4x100 m boðhlaup
2. sæti 4x400 m boðhlaup
Finnsk-sænska meistaramótið 1992
3. sæti langstökk, 6,10 m
Kosinn íþróttastrákur skólans í
Ekenáes skólaárið 1991-1992.
Kosinn íþróttamaður íþróttafélagsins
í Ekenáes í frjálsum fþróttum 1992.
Halldóra hefur bætt íslands
metið fjórum sinnum
Nafn: Halldóra Jónasdóttir, 15 ára,
Umf. Skallagríms, UMSB.
Setti fyrsta Islandsmetið sitt á árinu í
spjótkasti á ULM þegar hún kastaði
45,24 m. Hún varð líka í fyrsta sæti í
kúluvarpi.
Halldóra hefur síðan bætt íslands-
metið þrisvar sinnum, í 45,38 m, 45,88
m, og nú er metið hennar 47,54 m. Með-
altalið á þessum mótum er 43,61 m sem
er ótrúlegur árangur hjá svo ungri
stúlku.
I hvaða kasti hefurðu sett metin?
„I fyrstu tvö skiptin setti ég þau í fyrsta
kasti, en í síðari skiptin í fjórða og
fimmta kasti.“
Fyrsta reynsla af íþróttum? „Ég
byrjaði 12 ára að mæta á æfingar í
Borgarnesi og á annarri æfingu prófaði
ég að kasta spjóti og hef verið að því
síðan.“
Uppáhaldsgrein? „Spjótkast."
Erfiðasti andstæðingur? „Eng-
inn.“
Besti árangur:
Spjótkast 47,54 m
Kúluvarp, inni 11,15 m
Kúluvarp úti 11,05 m
Islandsmethafi í spjótkasti frá 12 ára
aldri:
1989 35,78 m, 400 gr
1990 37,76 m
1991 39,42 m
1992 47,54 m 7. september
Islandsmethafi íkúluvarpi:
1989 12 ára og yngri 4 kg, 8,25 m
og 3 kg, 9,93 m (innanhúss)
1991 13-14 ára, 10,95 m (utanhúss).
Islandsmeistari í spjótkasti
1989, 1990, 1991 og 1992
Islandsmeistari í kúluvarpi, utanhúss
1989
2. sæti 1990
1. sæti 1991
1. sæti 1992
Innanhúss:
3. sæti 1990
1. sæti 1991
Jóhann Haukur Björnsson.
Næsta takmark? „Að ná lágmörk-
um í langstökki og 60 m hlaupi til að
komast á finnsk-sænska meistaramótið.
Lágmark í langstökki er 6,30 m og 7,40
sek. í 60 m hlaupi.“
Framtíðaráform? „Ég ætla að
einbeita mér að tugþraut á næsta ári og
er núna að æfa á fullu en ef það gengur
ekki sný ég mér að bestu greininni. Ég
æfi nú 6-7 sinnum í viku í minnst tvo
klukkutíma á dag.“
Halldóra Jónasdóttir.
Norðurlandameistaramót unglinga í
Finnlandi 1992
5. sæti spjótkast 43,86 m
Næsta takmark? „Ég set markið
ekki hátt en reyni að gera mitt besta."
Framtíðaráform? „Ég ætla að halda
áfram og vona að allt gangi vel.“
Skinfaxi
13