Skinfaxi - 01.08.1992, Page 21
V IÐT A L
En það kom mér á óvart að ég skyldi
ekki geta kastað lengra. Þegar ég stend
úti á spjótkastsbrautinni og horft út á
grasið finnst mér ég skynja að ég geti
kastað lengra og það er það sem gefur
mér sjálfstraust og skap. Ég hef lengst
kastað 83,36 m og þetta er bara
spurning um að ná betra kasti við réttar
aðstæður.
Ég er mjög skapstyggur að eðlisfari
og reyni að nýta skapið og agann til
þess að virkja mig við réttar aðstæður.
Það sem mér finnst erfiðast þegar ég er
að keppa og er andlega þreyttur, er að
framkalla einbeitingu og þessa aukaorku
sem þarf til þess að ná árangri og það
get ég ekki gert mjög oft. Krafturinn,
spennan og reiðin verða að koma
innanfrá til þess að ég geti kastað langt.
Og ég þarf alltaf að hafa stöðuga
áskorun til þess að ná árangri."
Hefði einhver önnur grein en spjótkastið
komið til greina?
„Ég fór aðallega í spjótkastið vegna
þess að það er einstaklingsíþrótt. Til
þess að ná langt í hópíþrótt eins og
handbolta þá þurfa menn að lenda í
góðri liðsheild sem er tilbúin að leggja
það sama á sig og þú sjálfur. Ég spurði
sjálfan mig: Hvað kemst ég langt sem
körfubolta- eða handboltamaður á fs-
landi? Spjótið freistaði mín meira, þar
gat ég treyst á sjálfan mig og ráðið
æfingatímum.“
Ertu metnaðargjarn egóisti?
„Ég viðurkenni að ég er það, en ég
vil líka vera sanngjarn og vil ekki láta
eitthvað sem ég geri bitna á öðrum. En
ég geri hlutina með það að markmiði að
það komi mér sem best.
Ég vil fara mínar eigin leiðir og
stundum er ég þannig að ef einhver seg-
ir að þetta sé rétt og þetta sé það sem
eigi að gera, þá vel ég oft allt aðra leið.
Ég spyr mikið og hlusta á allt, en síðan
vil ég sjálfur taka ákvörðun.“
Hvernig er hugsað um afreksíþrótta-
menn á Islandi?
„Því miður er lítið sem ekkert hugað
um þá nenta þeir hugsi um sig sjálfir.
Fyrir Ólympíuleikana var góður stuðn-
ingur við mig, bæði frá Afreksmanna-
sjóði, Visa Island, Landsbankanum og
fleiri fyrirtækjum. Núna er hins vegar
tími samninganna liðinn og Afreks-
mannasjóður hættur að úthluta styrkjum
í óákveðinn tíma. Ég er auðvitað hálf
svekktur að vissu leyti, að vera afreks-
maður án þess að vera atvinnumaður og
Siggi tekur íþróttatöskuna með sér hvert
sem hann fer. (Ljósnrynd Pjetur)
að standa frammi fyrir því, loksins
þegar hlutimir eru famir að ganga vel,
að skrúfað sé fyrir alla styrki. Það er
dýrt að vera afreksmaður og þó að
styrkirnir séu góðir þá duga þeir engan
veginn fyrir þeim kostnaði sem undir-
búningur fyrir Ó1 kostar."
„Mér fannst Ól-nefndin vinna sín
verk ágætlega á flestum sviðum, en
auðvitað þekki ég ekki mikið til starfa
hennar. Gagnvart íþróttamanninum
fannst mér hins vegar að margt mætti
betur fara, t.d í sambandi við búninga-
mál og í samskiptum íþróttamanna við
aðra íþróttamenn. Við fengum einn
utanyfirgalla og jakkafötin sem ég fór
einu sinni í. Það mætti gera meira af því
að kynna íþróttamenn og ísland í fram-
haldi af því. Kollegar okkar gáfu okkur
minjagripi, en við höfðum ekkert að
gefa í staðinn.
Það má auðvitað alltaf setja út á allt
og það þarf ansi mikið til þess að gera
egóista eins og mig ánægðan. Mér
fannst FRÍ ekki standa sig nógu vel, en
vil taka það fram að ég geri miklar
kröfur. Ég er að hugsa um hvað ég
kemst langt, en þeir þurfa að hugsa um
margt annað en afreksíþróttafólkið.
Mín skoðun er sú að til þess að betur
verði búið að afreksmönnum þurfi að
setja á fót sérstaka afreksmannanefnd
sem starfi sjálfstætt innan FRI og sé
valin af afreksmönnunum sjálfum. Þetta
þurfa að vera menn sem bjóða sig fram
sjálfviljugir, vilja starfa og hafa þekk-
ingu til þess.
Slfk nefnd myndi ekki einungis
vinna að hagsmunamálum afreksmanna,
hún myndi einnig vinna að hagsmunum
íþróttanna í landinu. Mér finnst eins og
stjórnendur FRI hugsi ekki á þessum
nótum. Þeir þurfa að borga reikninga, en
hvað gera þeir til þess að útvega
peninga? Af hverju vann FRI ekki að
því að safna áheitum? Það er ekki sami
krafturinn á bak við forystumennina og
afreksmenn okkar, það vantar eitthvað
til þess að ýta á þá.“
Hvemig er hœgt að standa betur að
uppbyggingu íþrótta hér á landi?
„Mér finnst að núna eigi að leggja
sérstaka rækt við kastgreinar eins og
&SKART
Bankastræti 6. Simi 18600
Skinfaxi
21