Skinfaxi - 01.08.1992, Qupperneq 34
V I ÐT A L
I sviðsljósinu
Silla á
Blönduósi
Sigurlaug Hermannsdóttir á
Blönduósi, eða Silla eins og
alþjóð þekkir hana, er alltaf á
fullu. Hún hefur setið í stjórn
UMFÍ síðan haustið 1991 og var
formaður USAH 1988-1992. Hún
er fóstra að mennt og var fyrsta
fóstran og forstöðukonan á
barnaheimilinu á Blönduósi og
kenndi auk þess við Grunn-
skólann. Sat í stjórn Kennara-
sambands Norðurlands vestra
og var formaður æskulýðs-
nefndar A-Húnavatnssýslu frá
1975-1983.
Silla er óhrædd við að láta að sér
kveða og reyndar kemst maður ekkert
hjá því að fínna fyrir henni, því hvar
sem hún fer getur hún ekki látið nokk-
urn mann „í friði“, þó ekki væri nema
vegna þeirra áhrifa sem hláturinn og
fjörið hefur á mann!
Skinfaxi ræddi við Sillu unt það
hvort konur væru feimnari við að taka
að sér stjórnunarstörf en karlar, nýtt
fþróttahús á Blönduósi og ferðalag með
íþróttafólk á vegum UMFÍ til Fugls0 í
Danmörku.
Silla unir sér vel á gólfi íþróttahússins.
Eru konur feimnari við að taka að sér
stjórnunarstörf en karlar?
„Nei, ég held að þær séu það ekki
lengur, en þær fá bara ekki sömu tæki-
færin og karlar. Ef konur vilja virkilega
taka að sér stjórnunarstöður þá sækja
þær óhræddar um, en það er oft á bratt-
ann að sækja vegna gamalla hefða,“
segir Silla.
„Konur vantreysta sér stundum ef
um mjög krefjandi störf er að ræða, en
það er oft vegna þess að þær gera allt of
miklar kröfur til sín, þurfa helst að vera
fullkomnar. Konur í stjórnunarstöðum
þurfa líka að hafa mun meiri hæfileika
og kunnáttu en karlar til þess að hljóta
viðurkenningu. En konurnar hafa alla
tíð sinnt einu vandamesta hlutverkinu í
þjóðfélaginu, uppeldishlutverkinu, og
þar hafa stjórnunarhæfileikarnir fengið
að njóta sín.“
Öflugt íþróttalíf er
besta vörnin gegn
vímuefnum
Ný íþróttamiðstöð var vígð á Blönduósi
6. september síðastliðinn. Hvaða áhrif
kemur hún til með að liafa á íþróttalífið?
„Ég hef þá trú að gjörbreyting verði
á íþróttalífi í allri sýslunni. Nú verður
hægt að stunda fleiri íþróttagreinar og
aðstaða er til æfinga allt árið um kring.
Það verður hægt að halda stór mót og
áhugi bæjarbúa á öllum íþróttagreinum
á eftir að stóraukast. Við fáum örugg-
lega fleiri til að stunda íþróttir og bæta
líkamlegt ástand sitt. Vonandi fáum við
líka fleira fólk á staðinn, því æ fleiri eru
farnir að setja það ofarlega á listann við
búferlaflutninga að góð íþróttaaðstaða
sé fyrir hendi á nýja staðnum, vegna
þess að öflugt íþróttalíf hjá börnum og
unglingum er besta forvörnin gegn
vímuefnum."
Hvernig er hœgt að virkja sem flesta til
þess að taka þátt í íþróttum ?
„Besta ráðið til þess að virkja sem
flesta er að kynna íþróttir ítarlega í fjöl-
miðlum, og þá helst í sjónvarpi. Mér
finnst t.d. allt of lítið sýnt frá frjáls-
íþróttum í sjónvarpinu og fá viðtöl við
okkar ágæta frjálsíþróttafólk, bolta-
greinarnar eru allsráðandi."
Sigurlaug og maður hennar Fllynur
Tryggvason tóku að sér fararstjórn í 10
daga æfingaferð á vegum UMFÍ með
íþróttafólk til Fuglsp í Danmörku. Alls
fóru 28 unglingar 15-19 ára gamlir, alls
staðar að af landinu. Hvaða þýðingu tel-
ur hún að það hafi fyrir ungt og efnilegt
íþróttafólk að fara í svona æfingaferðir.
„Þessi ferð var í einu orði sagt alveg
frábær. Svona ferðir hafa sérstaka þýð-
ingu fyrir íþróttafólkið. Þarna kynnast
krakkarnir persónulega og bindast sterk-
um böndum, án þess að vera and-
stæðingar, eins og þau eru á mótum.
Þarna geta þau skipst á skoðunum og
miðlað hvort öðru af þekkingu sinni á
íþróttasviðinu. Ungt og efnilegt íþrótta-
fólk ætti að fara í svona ferðir og vera í
góðri þjálfun svo það hafi fullkomið
gagn af þeim. Þetta er frábær undir-
búningur fyrir aðal keppnistímabilið og
verður, ef vel tekst til, ógleymanleg
minning," sagði Silla að lokunt.
Fulgsöfarar UMFÍ 1992. Efsta röð f.v.: Bjarki, Róbert, Haukur, Magnús Orri, Stefán,
Tómas, Sigurbjörn, Sigurður, Sveinn, Skarphéðinn, Hans, Tlieodór og Þorvaldur.
Miðröðf.v.: Jóna Rós, Elín Gréta, Hrefna, Sonja og Olöf. Fremsta röðf.v.: Þórhalla,
Valgerður, Gerður, Ragnhildur, Arna Rut, Ása, Sigríður, Eyrún, Katla og Rebekka.
34
Skinfaxi